Fjölskyldur
Foreldrar/forráðamenn og aðrir fjölskyldumeðlimir aðstoða börn í að tileinka sér gildi ásamt því að leiðbeina og styðja við ákvarðanir barnanna.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
lýst leiðum sem foreldrar/forráðamenn og aðrir fjölskyldumeðlimir geti farið til að styðja við ákvarðanir barna sinna.
komið með dæmi um hvernig foreldrar/forráðamenn eða aðrir fjölskyldumeðlimir hafi haft áhrif á þeirra eigin ákvarðanir.
skoðað hvernig gildi fjölskyldunnar geta haft áhrif á ákvarðanir hans.
Fjölskyldur geta ýtt undir jafnrétti kynjanna í gegnum eigin hlutverk og ábyrgðarhlutverk.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
borið kennsl á hlutverk, réttindi og skyldur mismunandi fjölskyldumeðlima.
komið með tillögur að því hvernig fjölskyldur geti stutt við jafnrétti kynjanna í gegnum eigin hlutverk og skyldur.
áttað sig á að allir fjölskyldumeðlimirnir geti stutt við jafnrétti kynja innan eigin fjölskyldu.
sagt frá mikilvægi þess að jafnræði ríki hvað varðar verkaskiptingu innan heimilis, hlutverk og skyldur.
Heilsufar og sjúkdómar geta haft áhrif á fjölskyldur með tilliti til uppbyggingar, getu og ábyrgðar.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
lýst því hvernig heilsufar og sjúkdómar geti haft áhrif á hlutverk og skyldur fjölskyldumeðlima.
borið kennsl á það hvernig heilsufar og sjúkdómar geti haft áhrif á hlutverkaskipti innan fjölskyldunnar.
sýnt samkennd fyrir fjölskyldur sem glíma við sjúkdóma.