Það eru til margs konar vináttur.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
skilgreint hvað vinur er.
metið gildi vináttu.
greint frá því að kyn, fötlun eða heilsa einstaklinga komi ekki í veg fyrir að vinátta myndist milli einstaklinga.
Vinátta byggist á trausti, geta deilt með hvort öðru, virðing, samkennd og samstöðu.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint frá grunnstoðum vináttu (þ.e. traust, deila með öðrum, virðing, samkennd og samstaða).
sagt frá því hvernig megi byggja upp vináttu (byggða á grunnstoðum vináttu).
sýnt með dæmum hvernig sýna megi traust, virðingu, skilning og deila með vini.
Sambönd fela í sér margs konar tegundir af ást (þ.e. ást milli vina, milli foreldra, við gæludýr, milli systkina o.fl.) og það má tjá ást sína á margvíslegan máta.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
borið kennsl á mismunandi gerðir af ást og mismunandi leiðir að því að sýna ást.
greint frá því að ást megi sýna á margvíslegan máta.
tjáð ást í formi vináttu.
Það eru til heilbrigð og óheilbrigð sambönd.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint frá einkennum heilbrigðra og óheilbrigðra sambanda.
greint frá því hvaða snerting er í lagi og hvaða snerting telst ekki í lagi.
greint á milli heilbrigðrar og óheilbrigðrar vináttu.
ræktað og haldið uppi heilbrigðri vináttu.