Samþykki og einkalíf

Allir eiga rétt á einkalífi og líkamsvirðingu.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • skilgreint hvað felist í því að eiga rétt á einkalífi og líkamsvirðingu.

  • greint frá því að allir eiga rétt á einkalífi og að líkama þeirra sé sýnd virðing.

  • sagt frá og rætt um hvernig hann sjálfur upplifi eigin rétt til einkalífs og líkamsvirðingar.

Samþykki er mikilvægt í tengslum við kynferðislegt heilbrigði, kynferðislega ánægju og gagnkvæma virðingu í nánu sambandi.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • borið saman hvernig komið er fram á ólíkan hátt við líkama karla og kvenna og að mismunandi væntingar til kynferðislegrar hegðunar getur haft áhrif á hegðun í kynferðislegum samskiptum og veitingu samþykkis.

  • greint frá því að kynferðislegt samþykki og heilbrigð samskipti sé mikilvægur hluti af heilbrigðum samböndum.

  • leikið eftir leiðir til að gefa eða gefa ekki samþykki og borið kennsl á þegar samþykki er veitt eður ei.

Allir eiga rétt á því að ráða yfir því hvað þeir vilja og vilja ekki gera kynferðislega, og eiga að geta átt í markvissum samskiptum um samþykki við þann aðila sem sá hinn sami er í kynferðislegum samskiptum við.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • skilgreint hvað felist í samþykki og geti útskýrt mikilvægi þess í tengslum við kynferðislegar ákvarðanir.

  • greint frá því mikilvægi sem felist í að gefa og leita eftir kynferðislegu samþykki.

  • skoðað og greint frá þeim þáttum (t.d. áfengi, vímuefni, fátækt og valdamisjafnvægi) sem hafa áhrif á getu einstaklinga til að gefa fullt samþykki eða jafnvel greina það hvort samþykki sé veitt eður ei.

  • rætt um hvernig það að gefa samþykki eður ei er til að vernda eigin kynferðisleg og persónuleg mörk.