Umburðarlyndi og virðing
Mismunun og fordómar eru skaðlegir
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
greint frá því hvað felist í mismunun og fordómum og hvernig það geti verið skaðlegt.
greint frá eigin reynslu hvað varðar mismunun og hvaða afleiðingar það hafði (t.d. þöggun, afneitun, leynd o.fl.)
skoðað hvernig aðstæður og orðræða ýti undir fordóma og mismunun hjá einstaklingum.
sagt frá því af hverju það sé mikilvægt að sýna virðingu, umburðarlyndi og fordómaleysi gagnvart einstaklingum.
sýnt hvernig styðja megi við einstaklinga sem verða fyrir mismunun og fordómum.
Það er óheiðarlegt og skaðlegt að áreita eða leggja einhvern í einelti sem er byggt á samfélagsri, fjárhagslegri eða heilsufarslegri stöðu, uppruna, kynþætti, kynferði eða kynhneigð eða öðrum þáttum.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
útskýrt hvað felist í hugtökunum áreitni og einelti.
lýst því hvernig áreitni eða einelti gagnvart öðrum sé bæði virðingaleysi gagnvart einstaklingnum og skaðlegt sömuleiðis.
gert grein fyrir því að allir beri þá ábyrgð að vinna gegn einelti og mismunun.
komið með dæmi um hvernig megi vinna gegn mismunun og einelti.