Að leita aðstoðar og stuðnings
Það eru til margvíslegar leiðir sem hægt er að fara til að leita aðstoðar og stuðnings.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
áttað sig á hvenær mikilvægt er fyrir börn að leita aðstoðar (t.d. v/ofbeldis, áreitis, sjúkdóma) og geti greint hvers kyns aðstoð á við í hverju tilviki.
greint frá því að mikilvægt er að segja traustverðum fullorðnum einstaklingi frá ofbeldi, áreiti og ítrekaðri stríðni, og leita þannig aðstoðar.
greint frá því að við sumum vanda er mikilvægt að óska eftir aðstoð utan við skólann eða nærsamfélagið.
lýst leiðum sem hægt er að fara til að leita eftir aðstoð/hjálp, bæði í nærsamfélagi og almennar hjálparstofnanir.