5.- 7. bekkur

Samskipti og sambönd

Fjölskyldur

  • Foreldrar/forráðamenn og aðrir fjölskyldumeðlimir aðstoða börn í að tileinka sér gildi ásamt því að leiðbeina og styðja við ákvarðanir barnanna.

  • Fjölskyldur geta ýtt undir jafnrétti kynjanna í gegnum eigin hlutverk og ábyrgðarhlutverk.

  • Heilsufar og sjúkdómar geta haft áhrif á fjölskyldur með tilliti til uppbyggingar, getu og ábyrgðar.

Vinátta, ást og rómantísk sambönd

  • Vinátta og ást lætur einstaklingum líða vel með eigið sjálf.

  • Vináttu og ást má tjá á annan hátt þegar barn fullorðnast.

  • Ójafnræði innan sambanda getur haft neikvæð áhrif samböndin.

Umburðarlyndi og virðing

  • Mismunun og fordómar eru skaðlegir.

  • Það er óheiðarlegt og skaðlegt að áreita eða leggja einhvern í einelti sem er byggt á samfélagsri, fjárhagslegri eða heilsufarslegri stöðu, uppruna, kynþætti, kynferði eða kynhneigð eða öðrum þáttum.

Skuldbinding og foreldrahlutverkið

  • Barnagiftingar eru skaðlegar og gegn lögum í flestum löndum heimsins.

  • Langtíma sambönd, brúðkaup og foreldrahlutverkið eru margvísleg og eru mótuð af samfélagi, trú, menningu og lögum.

  • Menning og kynjahlutverk hafa áhrif á uppeldi.

Gildi, réttindi, menning og kynferði

Gildi og kynferði

  • Gildi og framkoma sem við lærum af fjölskyldu og samfélögum er uppspretta þess sem við lærum um kyn, kynferði og kynhneigð og hafa áhrif á okkar persónulegu hegðun og ákvarðanatöku.

Mannréttindi og kynferði

  • Það er mikilvægt að þekkja eigin réttindi og mannréttindi ásamt því hvernig þau réttindi eru sett fram í lögum landsins og alþjóðlegum sáttmálum.

Menning, samfélög og kynferði

  • Menning, trú og samfélagsleg gildi hafa áhrif eigin skilning á kynferðislegum málefnum.

að skilja kyn, kynímyndir og kynhlutverk

Samfélagsleg kyn og kynjaviðhorf

  • Samfélagsleg og menningarleg viðhorf ásamt trúarbrögðum eru allt þættir sem hafa áhrif á kynjahlutverk.

  • Það hvernig einstaklingur sér sjálfan sig eða lýsir sjálfum sér fyrir öðrum hvað varðar eigin kynvitund er einstaklingsbundið og ber að virða.

Jafnrétti kynjanna, staðalímyndir og fordómar

  • Kynjamisrétti og valdaójafnvægi á sér stað innan fjölskyldna, vina, sambanda, nærsamfélags og menningarheims.

  • Staðalímyndir um kyn og kynhneigðir geta valdið misrétti og ójafnræðis.

Kynbundið ofbeldi

  • Allar birtingarmyndir kynbundins ofbeldis eru brot á mannréttindum og er ekki ásættanleg hegðun.

  • Staðalímyndir kynja getur verið orsök að ofbeldi og misrétti.

öryggi og ofbeldi

Ofbeldi

  • Kynferðislegt ofbeldi, kynferðisleg áreitni og einelti (einnig net-einelti) hefur skaðleg áhrif á einstaklinginn og það er mikilvægt að leita aðstoðar ef maður verður fyrir slíku.

  • Ofbeldi í nánu sambandi er aldrei réttlætanlegt og það er mikilvægt að leita aðstoðar ef maður verður vitni að slíku.

Samþykki og einkalíf

  • Það er mikilvægt að átta sig á því hvað óvelkomin kynferðisleg athygli er og mikilvægi einkalífsins eykst eftir því sem maður eldist.

Örugg notkun upplýsinga og samfélagsmiðla

  • Internetið og samfélagsmiðlar krefjast ákveðinnar varúðar og nærgætni.

  • Kynferðislegt myndefni má nálgast á auðveldan hátt í gegnujm samfélagsmiðla og geta ýtt undir skaðlegar staðalímyndir fyrir kynin.

heilsa og velferð

Venjur og áhrif jafningja á kynhegðun

  • Jafningjar og vinir geta haft áhrif á ákvarðanir og hegðun í tengslum við kynhegðun.

  • Það eru leiðir sem hægt er að fara til að standast neikvæðan hópþrýsting og til að stuðla að jákvæðum jafningjaáhrifum í tengslum við kynhegðun.

Ákvarðanatökur

  • Ákvarðanataka er hæfni sem hægt er að læra og æfa sig í.

  • Það er margt sem getur haft áhrif á okkar eigin ákvarðanir, þar á meðal fjölskylda, menning, staðalímyndir kynja, jafningjar, áhrifavaldar og hinir ýmsu miðlar.

Samskipti, synjun og samningafærni

  • Skilvirk samskipti felst í margvíslegum leiðum og aðferðum og eru mikilvæg þegar þegar kemur að því að tjá sig og skilja óskir, þarfir og persónuleg mörk.

Fjölmiðlalæsi og kynvitund

  • Miðlar geta haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif á gildi og viðhorf einstaklinga gagnvart kynvitund, kyngervi og kyntjáningu.

Að leita aðstoðar og stuðnings

  • Það eru til margvíslegar leiðir sem hægt er að fara til að leita aðstoðar og stuðnings.

Mannslíkaminn og þroski

Kyn- og æxlunarfæri

  • Allir hafa kyn- og æxlunarfæri og það er algengt að börn hafi spurningar um þau.

  • Líkami kvenna getur losað egg á tíðarhring þeirra og líkami karla útbýr sæði sem losnar með sáðláti. Báðir þessir atburðir eru mikilvægir fyrir æxlun og frjóvgun.

Æxlun

  • Til að meðganga geti hafist þarf sáðfruma að frjóvga egg, og frjóvgað eggið að taka sér bólfestu í legi konunnar.

  • Tíðarhringur kvenna skiptist í mismunandi stig, þar á meðal tímann þegar egglos á sér stað. Á þeim tímapunkti, ef sæði er til staðar, er líklegast að frjóvgun eigi sér stað.

  • Það eru nokkur algeng einkenni sem gefa til kynna að kona sé þunguð en mikilvægt er að staðfesta þann grun með þungunarprófi ef blæðingar ættu að vera hafnar.

Kynþroskinn

  • Kynþroski er merki breytinga á getu einstaklings til að fjölga sér.

  • Á meðan kynþroska stendur er mikilvægt að huga að hreinlæti og heilbrigði kynfæranna.

  • Að fara á blæðingar er eðlilegur og náttúrulegur þáttur þeirra líkamlegu breytinga sem stúlkur upplifa á kynþroskaskeiðinu.

  • Á kynþroskaskeiðinu geta ungmenni upplifað ýmis líkamleg viðbrögð (t.d. ris á hinum ýmsu tímum dags, blautir draumar og kynferðislegar hugsanir).

LíkamsímLíkamsímyndynd

  • Líkami einstaklinga skilgreinir ekki virði þeirra sem mannveru.

  • Það er mikil fjölbreytni í því hvað einstaklingum finnst aðlaðandi í líkamlegu útliti annarra einstaklinga.

Kynferði og kynferðisleg hegðun

Kyn, kynhneigð og kynferðisleg tjáning

  • Einstaklingar fæðast með getu til að njóta eigin kynhneigðar og kynhegðunar í gegnum lífið.

  • Það er eðlilegt að vera forvitinn um kynhneigð og mikilvægt að geta spurt fullorðinn einstakling, sem maður treystir, spurninga er varðar efnið.

Kynferðisleg viðbrögð og hegðun

  • Einstaklingar geta brugðist líkamlega við kynferðislegri örvun (bæði líkamlegri og andlegri örvun).

  • Það er mikilvægt að geta tekið upplýstar ákvarðanir er snúa að kynferðislegri hegðun, þar á meðal ákvörðun sem snýr að því hvenær einstaklingur verður kynferðislega virkur.

Kynlíf, kynheilbrigði og æxlun

Meðganga og getnaðarvarnir

  • Það er mikilvægt að þekkja meginatriði þungunar og meðgöngu.

  • Getnaðarvarnir nútímans geta hjálpað einstaklingum við að koma í veg fyrir eða skipuleggja barneignir.

  • Kynjahlutverk og hugmyndir meðal jafningja geta haft áhrif ákvörðun einstaklinga á notkun getnaðarvarna.

HIV og alnæmi; fordómar, meðhöndlun og stuðningur

  • Það er mikilvægt fyrir einstaklinga sem lifa með HIV að þeir geti talað um eigin stöðu og líf með HIV í öruggu og styðjandi umhverfi.

  • Einstaklingur sem lifir með HIV hefur ákveðna þörf fyrir umhyggju og meðferð, sem í sumum tilfellum hefur ákveðnar aukaverkanir.

  • HIV og alnæmi (AIDS) hefur áhrif á fjölskyldur (samsetningu þeirra, hlutverk og ábyrgð)

Að skilja, þekkja og minnka áhættu gagnvart kynsjúkdómum

  • Einstaklingar geta fengið kynsjúkdóma eftir að stundað hefur verið kynlíf með einstaklingi sem er smitaður af kynsjúkdómi en til eru leiðir til að minnka áhættuna á að fá kynsjúkdóma.

  • HIV er vírus sem smitast á margvíslegan máta, þar á meðal í óvöðru kynlífi með HIV smituðum einstaklingi.

  • Það eru leiðir sem fólk getur farið til að minnka líkurnar á því að fá kynsjúkdóm.

  • Kynsjúkdómapróf er eina leiðin til að komast að því hvort að einstaklingur sé með kynsjúkdóm. Til er meðferð við flestum kynsjúkdómum.