Fjölskyldur

Það eru til margar mismunandi fjölskyldur um allan heim.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • sagt frá mismunandi samsetningum á fjölskyldum (t.d. tveir foreldrar (margvíslegar kynhneigðir), einstætt foreldri, stórfjölskylda, kjarnafjölskylda, fósturfjölskylda, tvær fjölskyldur (fjórir foreldrar).

  • talað um og sýnt mismandi fjölskyldumynstrum virðingu.

  • sýnt hvernig megi sýna virðingu í verki gagnvart margvíslegum fjölskyldumynstrum.

Fjölskyldumeðlimir hafa mismunandi þarfir og hlutverk

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • greint mismunandi þarfir og hlutverk fjölskyldumeðlima.

  • metið það hvernig fjölskyldumeðlimir sinna hvor öðrum á margvíslegan máta, jafnvel þó þeir vilji það ekki alltaf eða geti það ekki.

  • greint frá hverjar þarfir hans og hlutverk er innan eigin fjölskyldu.

Ójafnvægi milli kynja endurspeglast oft í hlutverkum og ábyrgð fjölskyldumeðlima.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • greint frá mismunandi hlutverkum og ábyrgð karla og kvenna innan fjölskyldunnar.

  • lýst því hvernig þessi mismunandi hlutverk geti haft áhrif á hvað sé gert og ekki gert innan fjölskyldunnar/heimilis.

  • skynjað að ójafnvægi milli kynja og kynjahlutverka hefur áhrif á hlutverk og ábyrgð meðlima innan fjölskyldunnar.

  • endurspeglað eigið hlutverk og tilfinningar sínar á því hvað felist í hlutverkum og ábyrgð karla og kvenna innan fjölskyldunnar.

Fjölskyldumeðlimir gegna mikilvægu hlutverki í að koma áfram gildum til barna.

Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :

  • greint frá því hvað gildi eru.

  • listað upp gildi sem hann sjálfur og fjölskylda hans telja mikilvæg.

  • greint frá því hvernig gildi fjölskyldna hafa áhrif á gildi barna.

  • sagt frá sínum eigin persónulegu gildum.