Meðganga og getnaðarvarnir
Það er mikilvægt að þekkja meginatriði þungunar og meðgöngu.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti:
greint frá megineinkennum þungunar.
sagt frá því hvaða leiðir hægt er að fara til að athuga hvort þungun hafi átt sér stað.
greint frá þeim áhættuþáttum sem eru til staðar við meðgöngu og fæðingu hjá barnungum stúlkum.
rætt þær neikvæðu hliðar (heilsufarslegar og félagslegar) sem geta komið fram hjá stúlkum sem verða óléttar á barnsaldri.
Getnaðarvarnir nútímans geta hjálpað einstaklingum við að koma í veg fyrir eða skipuleggja barneignir.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
áttað sig á staðreyndum og staðreyndavillum sem eru til staðar gagnvart getnaðar- og kynsjúkdómavörnum, smokkum og öðrum leiðum til að koma í veg fyrir þungun.
greint frá því að öruggasta leiðin til að forðast þungun er að stunda ekki samfarir.
lýst þeim leiðum sem farnar eru í réttri notkun smokksins.
Kynjahlutverk og hugmyndir meðal jafningja geta haft áhrif ákvörðun einstaklinga á notkun getnaðarvarna.
Markmiðin á bak við lykilhugmyndina eru að nemandi geti :
rætt þau áhrif sem að kynjahlutverk og hugmyndir meðal jafningja geta haft á notkun getnaðarvarna.
greint frá því að það er ábyrgð beggja aðila hvort að smokkurinn eða aðrar getnaðarvarnir séu notaðar.
greint frá því að það er ábyrgð bæði karla og kvenna að koma í veg fyrir ótímabæra þungun.
rætt á gagnrýninn hátt sínar eigin hugmyndir gagnvart getnaðarvörnum og hvernig kynjahlutverk og hugmyndir meðal jafningja hafi áhrif á þær hugmyndir.