Skýli

Látið nemendur vinna í teymum við að hanna og reisa skýli með því að nota náttúruleg efni sem finnast í umhverfinu eða efni sem kennari hefur útvegað. Hvetjið til sköpunar og að nemendur finni lausnir þar sem þeir huga að þáttum eins og stöðugleika, veðurþoli og þægindum. Þegar snjór er úti er tilvalið að gera snjóhús eða grafa sig í fönn.