Stop motion fyrir 8. - 10. bekk

Viðfangsefni valgreinarinnar er eftirfarandi:

· hugmyndavinna (eða velja ákv. sögu, t.d. þjóðsögu)

· handrit

· storyboard

· búa til leikmynd, leikmuni, persónur

· útfæra lýsingu

· animera

· klippa

· eftirvinna

Valgrein fyrir þá sem hafa raunverulega áhuga, eru tilbúnir að leggja á sig vinnu og sýna þrauteigju og þolinmæði við að fullvinna verkefni sín.

Gerð er krafa um frumkvæði, áhuga og vinnusemi nemenda. Ætlast er til að nemendur útfæri sínar eigin hugmyndir í samráði við kennara - með fyrirvara um að framkvæmd þeirra sé raunhæf.

Námsmat: Lokið / ólokið með umsögn.

Valgreinin er kennd í Lundarskóla á mánudögum kl. 14 á vorönn