Inni- og útileikir fyrir 8. - 10. bekk

Lýsing: Í þessari valgrein verður lögð áhersla á létta, fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu. Farið verður í allskonar leiki, bæði inni og úti. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman saman og nýta leikgleðina. Einnig verður unnið með samvinnu og hreyfingu.

Námsmat: Virkni og íþróttamannsleg hegðun.

Valgreinin er kennd á haustönn.