Skrautskrift fyrir byrjendur fyrir 8. - 10. bekk

Markmið: Námskeiðið hentar öllum, hvort sem þeir telja sig skrifa vel eða illa.

Kennd er ákveðin tækni við að skrifa. Algengasta skrautskriftin er notuð, þ.e. Italic Calligraphy. Á námskeiðinu eru kennd grunnatriði í skrautskrift, hvernig textar eru settir upp og hvernig má skreyta þá.

Efni: Þátttakendur fá einn skrautskriftarpenna en að öðrum kosti mæta þeir með sína eigin skrautskriftarpenna.

Kennt í Glerárskóla á mánudögum á vorönn.