Spænska I fyrir 8. – 10. bekk

Haust - byrjendur

Markmið með valgreininni er að nemendur:

· Kynnist máli og menningu í þeim löndum þar sem spænska er töluð.

· Öðlist færni í að tjá sig á spænskri tungu, og geti þannig svarað einföldum spurningum um sjálfan sig.

· Þjálfist í að skilja stuttar talaðar setningar á spænsku.

· Þjálfist í að lesa léttan texta og skrifa stuttar setningar.

· Læri grundvallaratriði í málfræði með íslenskt mál til hliðsjónar.

· Tileinki sér framburðarreglur og æfi framburð.

Helstu viðfangsefni:

· Orðaforði sem er byggður upp úr nánasta umhverfi og athöfnum daglegs lífs.

· Ýmsar tómstundir og afþreying ungs fólks eins og t.d. spænsk tónlist, kvikmyndir og leikir.

Leiðir og kennsluaðferðir: Spænsk tónlist og kvikmyndir, leshefti, vinnublöð, námsleikir/spil, annað margmiðlunarefni.

Námsmat: Munnleg verkefni, hóp- og einstaklingsverkefni og próf ásamt öðru.

Kennt verður á miðvikudögum í þeim skóla þaðan sem flestir nemendur koma