Spurningar eru mikilvægustu verkfæri okkar í þekkingarleitinni. Spurningar eru margvíslegar og það skiptir máli í hvaða samhengi þær birtast. Nemendur í grunnskóla eru oft vanari því að svara spurningum en að spyrja sjálfir. Ef við viljum að nemendur okkar beri ábyrgð á eigin námi er nauðsynlegt að snúa þessu við og hvetja nemendur til að eigna sér fjölbreyttar spurningar og nota þær markvisst.
Spurningastofnar eru einfalt verkfæri sem sett var fram af James Nottingham í bókinni The learning Challenge. Stofnarnir eru uppskriftir að 12 gerðum spurninga sem hjálpa nemendum að rýna í merkingu texta, bæði merkingu orðanna í textanum en líka það sem liggur milli línanna og álykta má út fyrir textann.
Hægt er að prenta stofnana út og hafa þá sýnilega í kennslustofunni.
Nemendur á mið- og unglingastigi þurfa ekki mikla kynningu á þeim, uppskriftirnar eru einfaldar og skýra sig nokkuð vel sjálfar. En sumir stofnarnir geta reynst erfiðari en aðrir og mikilvægt er að kennari leiðbeini nemendum áfram um notkun þeirra ef hann sér þá lenda í vandræðum.
Hér er dæmi um verklýsingu til nemenda í tíma þar sem þeir æfa sig í notkun spurningastofna. Kennari velur texta sem hann treystir nemendahópnum sínum til að lesa, upplagt er að nota texta sem verið er að vinna með í skólanum, eða texta úr fréttum líðandi stundar. Við mælum til dæmis með stuttum greinum af vísindavefnum og textum í námsefninu Útbrot.
Spurningastofnarnir eru prentaðir út í litlu formi (6 stofnar á einni A4 síðu), klipptir niður og þeim dreift til nemenda sem skrifa spurningarnar sínar aftan á miðann. Nemendur hafa þá taf skýringar á stofninum sýnilegar og dæmi sem þeir geta hermt eftir á meðan þeir venjast því að móta ólíkar spurningar.
Þegar nemendur hafa skrifað spurningar með hjálp stofnanna er mikilvægt að vinna áfram með spurningarnar þeirra. Hugmyndir að úrvinnslu eru til dæmis:
Kennari les sýnishorn af spurningunum fyrir bekkinn til að sýna nemendum strax hversu fjölbreyttar og efnismiklar spurningarnar þeirra geta verið.
Hægt er að draga spurningar úr safni nemenda og taka til samræðu í bekknum eða minni hópum.
Hægt er að skoða slatta af spurningum nemenda og biðja þá um að flokka þær eftir efni spurninganna. Spurningaflokkar geta síðan sett stefnuna fyrir rannsóknir nemenda, lengri samræðu eða skapandi skil.
Kennari getur hengt spurningarnar upp á veggi og beðið nemendur um að skoða þær, velja sér 2-5 spurningar og svara í vinnubók eða stuttri ritun.