Haukur ÍS 847 í Bremerhaven
Fíkniefnaævintýri tveggja skipverja á Hauki 847 frá Ísafirði, í Þýskalandi 2005.
Tenglar:
Samantekt frétta af málinu
Þýsk lög um meðferð sakamála - Strafprozeßordnung (StPO)
Þýsk hegningarlög - Strafgesetzbuch (StGB)
Þýsk lög um meðferð fíkniefna - Betäubungsmittelgesetz (BtMG)
Skip.is:
Kaupin á Hauki
Haukur á skipaskrá
Samkynhneigðar mörgæsir í dýragarðinum í Bremerhaven
Tímalína:
6. janúar:
Haukur leggst að bryggju að morgni dags.
Um kvöldið gera tollyfirvöld leit í skipinu og finna samtals um 7 kg af fíkniefnum í káetum 2 manna.
7. janúar
Mennirnir 2 eru dæmdir í 6 mánaða gæsluvarðhald.
11. janúar
Haukur kemur til Hafnarfjarðar án tvímenninganna.
X. mars
Dómari úrskurðar um að skipleitin hafi verið ólögmæt og þar með séu fíkniefnin og yfirlýsingar tvímenninganna sem gefnar voru á grundvelli fundarins ekki lögmæt sönnunargögn.
X. júní
Skipverjarnir eru látnir lausir úr haldi þar sem ekki var neitt eftir til þess að styðja ákæru gegn þeim.
A. Skipið
Snemma dags fimmtudaginn 6. janúar 2005 kom togarinn Haukur ÍS 847 til Bremerhaven í Þýskalandi, í sinni fyrstu söluferð til Þýskalands fyrir útgerðarfélagið Torfnes ehf. á Ísafirði.
Haukur er 860 brúttórúmlesta ístogari, smíðaður í Póllandi árið 1972. Árið 2002 keypti Torfnes skipið, sem þá hét Skagfirðingur SK og hafði legið við bryggju á Sauðárkróki í 3 ár.
B. Beiðni frá íslenskum lögregluyfirvöldum
Áður en Haukur kom til hafnar hafði íslenska lögreglan, að því er virðist í gegnum Interpol, haft samband við þýsku ríkislögregluna (Bundeskriminalamt) og lýst yfir grunsemdum sínum vegna farar skipsins. Svo virðist sem upplýsingar íslenskra yfirvalda hafi verið mjög óljósar, en meðal þess sem þýsku lögreglunni var sagt var að 8 af 12 skipverjum skipsins hefðu hlotið fíkniefnadóma. Jafnframt mun íslenskum yfirvöldum ekki hafa verið tilkynnt um Þýskalandsför skipsins á fullnægjandi hátt.
C. Tollurinn njósnar
Íslenska lögreglan mun hafa óskað eftir því að haft yrði eftirlit með skipverjunum á Hauki ÍS, þar sem grunur léki á að þeir hygðust smygla fíkniefnum til Íslands með skipinu. Voru tollverðir látnir njósna um skipverjana þar sem þeir ferðuðust um Bremerhaven, en þeir urðu ekki varir við neitt sem benti til þess að íslendingarnir væru viðriðnir fíkniefnamisferli.
D. Látið skríða til skara
Að kvöldi 6. janúar þótti þýskum tollyfirvöldum ljóst að ekki myndi fást heimild dómara til þess að leita í skipinu, þar sem ekkert lá fyrir til að rökstyðja grun um fíkniefnasmygl, annað en óljós ábending frá lögreglunni á Íslandi.
Var þá brugðið á það ráð að fyrirskipa leit í skipinu á grundvelli þýskra tollalaga.
Fóru 20 tollverðir ásamt 4 leitarhundum um borð, söfnuðu skipverjum saman í matsalnum og leituðu hátt og lágt í togaranum. Í tveimur káetum fundust samtalst um 3,5 kg af kókaíni og 3,5 kg af hassi.
Tveir áhafnarmeðlimir, 38 og 51 árs gamlir, voru handteknir og færðir fyrir dómara næsta dag, sem úrskurðaði þá í 6 mánaða gæsluvarðhald.
E. Svart útlit
Í fréttatilkynningu frá þýskum tollyfirvöldum var götuandvirði fíkniefnanna á Íslandi sagt vera um 620 þúsund evrur, 5-6 sinnum hærra en í Þýskalandi. Það gera rúmar 23 íslenskar milljónir á gengi marsmánaðar 2007.
Samkvæmt þýskri fíkniefnalöggjöf, Betäubungsmittelgesetz (BtMG) áttu mennirnir yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi, enda um verulegt magn að ræða, en ekki var þó búist við því að dæmd yrði hámarksrefsing í málinu.
F. Snjallir lögfræðingar
Í apríl voru tvímenningarnir látnir lausir samkvæmt dómsúrskurði, mörgum að óvörum, eftir þriggja mánaða gæsluvarðhaldsvist.
Samkvæmt þýskum lögum gátu tollayfirvöld leitað í skipinu án þess að bera það undir dómara en sú heimild var fyrir dómi ekki talin ná til vistarvera skipverjanna, þar sem þær væru verndaðar samkvæmt ákvæðum um friðhelgi heimilis.
Leit tollvarðanna í vistarverum mannanna var ekki gerð á grundvelli leitarheimildar dómara, né var talið að nægilega rökstuddur grunur hefði verið fyrir hendi til þess að réttlæta leitina.
Leitin var því talin ólögmæt ásamt sönnunargagögnum sem fundust við hana, og það sama átti við um yfirlýsingar sem mennirnir gáfu á grundvelli fíkniefnafundarins. Hafði skipverjunum ekki verið leiðbeint um að þeir gætu neitað um að leitað yrði í káetum sínum.
Þar sem yfirlýsingarnar og fíkniefnin stóðu í beinu sambandi við hina ólögmætu leit var ekki hægt að nota þau sem sönnunargögn í málinu.
Ekkert var því eftir til þess að byggja á ákæru á hendur mönnunum. Samkvæmt fréttum frá því í júní 2005 höfðu saksóknarar í Þýskalandi ekki gefið up alla von um að sækja mætti skipverjana til sakar, en ekkert hefur gerst enn í málinu þegar þetta er skrifað. Í raun er það eina sem gæti breytt nokkru um stöðu málsins, að skipverjarnir gæfu sig fram og játuðu sök upp á nýtt. Telja verður ólíklegt að svo fari.
G. Réttlát málsmeðferð í Þýskalandi
Þýsk lög um meðferð sakamála (Strafprozeßordnung) veita sakborningi rík réttindi. Hafa þau í raun verið kölluð „magna carta“ glæpamanna. Sjónarmið um réttláta málsmeðferð (Faires Verfahrens) standa sterk að vígi í þýskum rétti, en rekast gjarnan á sjónarmið um áhrifaríka saksókn þannig að oft er nauðsynlegt að vega og meta hagsmuni almennings og sakbornings í hverju máli.
Í 261. gr. laga um meðferð sakamála segir að dómari skuli dæma eftir frjálsri sannfæringu sinni. Er hér um að ræða svokallað frjálst sönnunarmat, en svipaða reglu er að finna í 46. gr. íslenskra laga um meðferð opinberra mála. Almennt er hins vegar óheimilt að notast við gögn sem fengin eru með ólögmætum hætti í þýskum rétti, á þýsku er þetta nefnt Nichtverwertung sönnunargagna.
Svipaðri reglu er ekki fyrir að fara á Íslandi, í það minnsta ekki ennþá .
Heimildir:
- Frétt á heimasíðu þýska tollsins.
- Frétt á Weser-Kurier.de (horfin af netinu).
- Frétt á BB.is (horfin af netinu).
- Samson, Erich: “The Right to a Fair Criminal Trial in German Criminal Proceedings Law” í The Right to a Fair Trial (Beitraege Zum Auslaendischen Oeffentlichen Recht Und Voelker Recht). Ritsj. David Weissbrodt og Rüdiger Wolfrum, bls. 513.
Myndir:
- Mynd af Hauki á Skip.is
- Mynd af Bremerhaven á Bremerhaven.de
- Mynd af þýskum fíkniefnahundi á Amazon.de
- Mynd af Justitiu á huizen.daxis.nl
18. mars 2007 - Haraldur St - haraldurs æ gmail.com - heim