Markmið
Tilgangur náms og kennslu í norrænum tungumálum á Íslandi er að viðhalda og styrkja tengsl við Norðurlandaþjóðirnar og stuðla að því að Íslendingar eigi greiða leið að sameiginlegum markaði menntunar og atvinnu á Norðurlöndunum.
Hæfni og kunnátta í norrænum tungumálum gerir Íslendingum kleift að vera virkir þátttakendur í mikilvægu norrænu samstarfi, námi, starfi og leik. Góð kunnátta í einu norrænu tungumáli er lykill að hvaða svæði sem er á Norðurlöndunum og greiðir fyrir öllum samskiptum.
Kenna þarf nemendum um málið, gildi þess, meginreglur og orðaforða til að nýta við lestur, talað mál og ritun. Þjálfa þarf nemendur í að eiga samtal á tungumálinu, beita góðum framburði, áherslum og hrynjandi til þess að öðlast öryggi í að nýta tungumálið hvenær sem á þarf að halda.
(Aðalnámskrá grunnskóla)
Nemendur klára stig 2 í 9. bekk. Frammistaða nemenda í hverri lotu er metin út frá þeim hæfniviðmiðum sem er unnið er með.
Hæfniviðmið eru metin út frá matskvörðunum: A, B+, B, C+, C og D.
Í Bordbombe eru m.a. smásögur og ljóð eftir danska höfunda, skrýtlur, vandræðaleg augnablik og dægurlagatextar.
Alarm er léttlestrarbók fyrir unglinga og fjallar um vinkonurnar Clöru og Nönnu sem fara í verslunarferð sem hefur óvænt endalok.
Scooter - er léttlestrarbók fyrir unglinga og fjallar um vinina Noa og Hugo sem taka vespu ófrjálsri hendi.
Grammatik - handbók í málfræði
Snara.is er orðabók á netinu sem nemendur hafa aðgang að í skólanum. Hægt er að gerast áskrifandi.
Íslex er ókeypis orðabók á netinu.
Dönsk/dönsk orðabók. Auðvelt að sjá beygingar orða.
Taleboblen Hér getur þú m.a. fundið orðatiltæki, hlustað og æft samtöl, leikið með tónlist, farið á Facebook og hitt aðra nemendur sem eru líka að læra dönsku.
Vefur þar sem hægt er að læra hin ýmsu tungumál. Velja fána fyrir tungumálið.
Duolingo vefur - smáforrit til að læra tungumál.
Lingohut.com er vefsíða sem býður m.a. upp á að læra dönsku. Auðvelt að æfa framburð á þessari síðu með 125 æfingum á dönsku.
Atlantbib er vefur með stuttar rafrænar bækur. Flestar bækurnar er hægt að lesa/hlusta á, á fleiri en einu tungumáli.
Alls konar efni á dönsku til útprentunar.
Andrés önd á dönsku, spil og leikir
Tölurnar á dönsku
Tölur Hér getur þú hlustað á tölurnar og æft þig í að endurtaka þær.
Tölurnar - æfing. Hér getur þú prófað hvort þú kannt tölurnar.
Ýmsir leikir
Danska ríkissjónvarpið