Markmið
Megintilgangur náms og kennslu í stærðfræði er að nemendur öðlist alhliða hæfni og skilning til að nota stærðfræði sem verkfæri í fjölbreyttum og margs konar tilgangi og við ólíkar aðstæður í daglegu lífi, leik og starfi. Nemendur þurfa að fá tækifæri til að þróa með sér hæfni til að setja fram lausnir og leysa viðfangsefni, ígrunda ólíkar aðferðir og líkön sem nýtast við lausn viðfangsefna og leggja mat á niðurstöður.
(Aðalnámskrá grunnskóla)
Til námsmats koma þau verkefni sem unnin eru yfir önnina, leiðsagnarmat, próf og virkni.
Nemendur eru hvattir til að búa til glósubók sem þeir nýta í kennslustundum og til undirbúnings fyrir próf. Glósubók verður ekki leyfð í prófum. Námsmat verður birt á Mentor.
Viðfangsefni hvers námsþáttar;
1. Talnareikningur
Stytta og lengja brot
Samlagning og frádráttur með almennum brotum
Margföldun og deiling með almennum brotum
Röð reikniaðgerða
2. Rúmfræði
reikna út óþekktar hliðar
regla pýþagorasar
skoða einslögun
rúmmál og yfirborðsflatarmál
hornaföll
Hæfniviðmiðmið:
beitt þekktum eiginleikum lína, þríhyrninga og annarra marghyrninga til að reikna hliðarlengdir og horn, reiknað og útskýrt tengsl milli grundvallareiginleika hrings, útskýrt og beitt reglu Pýþagórasar.
teiknað skýringarmyndir og unnið með teikningar annarra út frá gefnum forsendum, t.d. um mælikvarða, einslögun og hlutföll, rannsakað og lýst sambandi milli teikningar og hlutar.
mælt stærðir á þrívíðum formum, áætlað og reiknað rúmmál og yfirborðsflatarmál og skilið tengsl við tvívíð form, samhverfu og snúningsmiðju.
3. Algebra
einföldun stæða
þáttun liðastærða
leysa jöfnur
leysa línuleg jöfnuhneppi
stytta almenn brot með bókstafastæðu
þátta algebrustæður
föll
Í stærðfræði í 10. bekk eru kenndar fjórar 60 mínútna kennslustundir í hverri viku.
Áætlun má finna á Mentor og Google Classroom - stærðfræði.
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæð viðbrögð til stærðfræði eru mikilvægir þættir í stærðfræði. Það er því mikið lagt upp úr framlagi nemenda. Samræður við aðra nemendur og samvinna þeirra á milli er einnig partur af lærdómssamfélagi í stærðfræði og því eru nemendur eru hvattir til þess að hjálpast að við lausn verkefna.
Fyrir áramót:
Talnareikningur
Rúmfræði
Eftir áramót:
3. Algebra
Námsbækur: Kennarar hafa sett námsbækur á pdf formi inni á Google Classroom.
STÆ103
Upp á punkt
viðbótarefni frá kennara sett inn á Google Classroom
Smáforrit: GeoGebra og Desmos.
Önnur gögn: vasareiknir, gráðubogi og reglustika