Markmið
Hæfni í náttúrugreinum felst í þekkingu og leikni en einnig í viðhorfi til náttúru, tækni, samfélags og umhverfis. Nám í náttúruvísindum á að stuðla að þekkingu, virðingu, ábyrgð og einstakri upplifun nemenda gagnvart náttúru, tækni, samfélagi og umhverfi. Þannig öðlast þeir þá hæfni sem til þarf til að taka skynsamlegar ákvarðanir í málefnum er varða tengsl fólks og náttúru. Námið fléttar saman efnisþætti náttúrugreina og viðmið sem varða eflingu ábyrgðar á umhverfinu, vinnubrögð og gildi náttúrugreina, nýsköpun og hagnýtingu þekkingar og getu til aðgerða. (Aðalnámskrá grunnskóla)
Unnið út frá hæfniviðmiðum
Símat
Kannanir
Skýrslugerðir
Einstök verkefni
Hæfniviðmið eru metin út frá matskvörðunum: A, B+, B, C+, C og D.