Markmið
Nemandi getur sýnt fram á gott þol í hlaupi. Sýnt góðan styrk og stöðugleika í mismunandi vöðvahópum og góða samhæfingu, liðleika, leikni og úthald í æfingum. Útskýrt vel leikreglur í hópíþrótt og einstaklingsíþrótt og fylgt þeim. Gert góða grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og unnið með langtímamarkmið í heilsurækt. Útskýrt og tileinkað sér vel öryggis- og skipulagsreglur sundstaða. Framkvæmt vel allar sundaðferðir og hefur gott þol í 200 metra sundi.
(Aðalnámskrá grunnskóla)