Markmið
Megintilgangur náms og kennslu samfélagsgreina felst í að þroska hæfni nemenda til að skilja sjálfan sig og aðra, að eiga innihaldsrík samskipti við aðra, skilja og skynja veruleikann, umhverfið, samfélagið, söguna og menninguna. Nemendum er ætlað að öðlast hæfni í að mynda og þróa ný tengsl með því að virkja þá til þátttöku í samfélaginu, tileinka sér þau gildi og reglur sem þar ríkja og öðlast skilning á þeim hugmyndum og hugsjónum sem liggja til grundvallar viðhorfum okkar til umhverfis, auðlinda, menningar og sögu. Samfélagsgreinum er einnig ætlað að gera nemendum kleift að nálgast samfélagsleg og siðferðileg álitamál með ígrundun og samræðu þar sem afstaða þeirra mótast af rökum og virkri hlustun á ólík sjónarmið.
(Aðalnámskrá grunnskóla)
Frammistaða nemenda í lok 10.bekkjar er metin út frá þeim hæfniviðmiðum sem er unnið er með.
Hæfniviðmið eru metin út frá matskvörðunum: A, B+, B, C+, C og D.