Blek úr jarðvegi
Kennsluáætlun sem byggir á vinnustofu listamannsins Maríu Sjafnar, og vísindamannsins Hjartar Þorbjörnssonar.
Í þessari vinnustofu búa þátttakendur til blek úr jarðvegi og skapa listaverk með blekinu.
Hæfniviðmið:
Í lok þessarar vinnustofu mun nemendur hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Efnisumbreytingu með því að skilja ferlið við að breyta jarðvegi í nothæft blek og hvernig endurnýta megi náttúruleg efni í listsköpun.
Prófun innihaldsefna með því að geta borið kennsl á innhaldsefni sem þarf í blekgerð úr jarðvegi, s.s. mismunandi jarðveg, bindiefni og litarefni og áttað sig á hlutverki hvers og eins þáttar í blekgerðarferlinu.
Tæknilegum atriðum í blekgerð með því að sýna kunnáttu í blöndun og undirbúningi fyrir blek úr jarðvegi til að ná fram æskilegri þykkt, lit og áferð sem hefntar í listsköpun.
Listrænni tjáningu. Með því að nota heimatilbúið blek í listsköpun, sýna nemendur fram á sköpunargáfu, frumleika og getu til að vinna með blek í þeim tilgangi að kalla fram mismunandi sjónræn áhrif og stíla.
Umhverfisvitund með því að þekkja jákvæð áhrif þess á umhverfið að nota náttúruleg efni úr nærumhverfinu í listsköpun og skilja sjálfbærniþátt þess að endurnýta jarðveg í listrænum tilgangi.
Listrænni framsetningu með því að kynna fullbúið listaverk sem sýnir árangursríka notkun bleks úr jarðvegi í sjónrænt aðlaðandi og vandlega samsettu verki.
Ígrundun og skrásetningu með því að pæla í blekgerðinni og listsköpunarferlinu, skrásetja skrefin í því, þær áskoranir sem komu upp ásamt persónulegum listrænum vexti eða innsýn í allt ferlið.
Samstarfi og miðlun með því að vinna með jafningjum, deila reynslu, tækni og listaverkum sem unnin eru með bleki úr jarðvegi. Þetta eflir tilfinningu fyrir samfélaginu og kennir þátttakendum að meta fjölbreyttar listrænar nálganir.
Öryggi og ábyrgðartilfinningu með meðhöndlun efna í blekframleiðsluferlinu með því að fara eftir leiðbeiningum um notkun tækja og tóla.
Gagnrýninni hugsun með því að meta kosti og taknarkanir þess að nota blek úr jarðvegi í listsköpun og kanna möguleika þess til nýsköpunar og frekari tilrauna í listrænum tilgangi.
Kennsluáætlun
Útskýrið hvernig ræktun og athafnir mannsins hafa áhrif á eiginleika og gæði jarðvegar. Ræðið áhrif mengunar á jarðvegsgæði.
Takið jarðvegssýni frá mismunandi stöðum og skrifið niður hvernig plöntur vaxa á þessum stöðum. Ræðið mismunandi eiginleika jarðvegarins fyrir örverur í tengslum við sýrustig, frárennsli, uppbyggingu o.þ.h.
Útskýrið hvers vegna jarðvegsgæði eru flókið samspil margra mismunandi þátta, s.s. sýrustigs, frárennslis, uppbyggingar, lífræns efnis, hitastigs og fleira. Jarðvegsgæði gegna lykilhlutverki við að styðja við örverur sem eru nauðsynlegar heilbrigðum jarðvegi og vistkerfum. Hér eru helstu eiginleikar jarðvegs sem hafa áhrif á örverur: Sýrustig: Súrt og basískt. Sýrustig mælir hversu súr eða basískur jarðvegurinn er. Örverur vilja mismunandi sýrustig. Sumar þrífast best í lítillega súrum jarðvegi á meðan aðrar kjósa hlutlausan eða basískan jarðveg. Sýrustig jarðvegar hefur tegundir og magn örvera í honum. Raki og frárennsli hafa mikil áhrif á örverur þar sem þær þarnast vatns til þess að lifa og sinna hlutverki sínu. Jarðvegur sem er alltaf of blautur getur hentað örverurunum verr. Vel framræstur jarðvegur með heppilegu rakastigi skapar betra umhverfi fyrir örverurnar. Jarðvegsáferð (stærð steinefnaagnanna) og samansafn (hversu vel agnir haldast saman) hefur áhrif á getu jarðvegarins til að halda lofti og vatni í sér. Góð jarðvegsuppbygging veitir örverum rými til að þrífast og hreyfa sig, aðgengi að næringu og góða loftun. Lífrænt efni á formi plöntuleifa, moltu og annarra lífrænna efna eru fæða fyrir margar örverur. Jarðvegur sem inniheldur mikið af lífrænu efni styður við fjölbreytt og virkt örverulíf. Hitastig hefur áhrif á virkni örvera. Hærra hitastig stuðlar almennt að hraðari vexti og virkni örveranna á meðan lægra hitastig hægir á sömu þáttum. Það er misjafnt hvaða hitastig hentar örverum. Örverur þurfa nauðsynleg næringarefni, s.s. köfnunarefni, fosfór og kalíum, til að vaxa og geta sinnt hlutverki sínu. Jarðvegur sem er með rétt næringarinnihald getur stutt við heilbrigt örverusamfélag. Nægilegt súrefnismagn í jarðvegi er nauðsynlegt loftháðum örverum sem þurfa súrefni fyrir efnaskiptin sín. Jarðvegur sem er með næga loftun auðveldar niðurbrot lífrænna efna og þannig einnig næringarhringrásina. Í sumum jarðvegi eru eiturefni eins og þungmálmar eða skordýraeitur sem getur haft skaðleg áhrif á örverurnar. Heilbrigður jarðvegur með minna magni eiturefna er hentugri fyrir virkni örvera. Fjölbreytt samfélag örvera stuðlar að jarðvegsheilsu. Mismunandi örverur hafa hver sitt hlutverk í hringrás næringarefna og niðurbroti lífrænna efna. Mikill fjölbreytileiki örvera eykur viðnám jarðvegarins. Afhafnir fólks, eins og landbúnaður, þéttbýlismyndun og mengun, geta breytt jarðvegsgæðum og haft áhrif á örverur. Með sjálfbærni að leiðarljósi við auðlinda- og landstjórnun er hægt að viðhalda heilbrigði jarðvegarins og styðja við öruveruvöxt.
Búið til blek úr jarðvegssýnum.
Takið til efnið sem þarf: mortél, sía, mælibollar og skeiðar, pottur sem þolir blekgerðina, helluborð, hræriskeið eða prik, borðedik, salt, glerílát með lokum, arabískt gúmmí (bindiefni sem fæst í flestum föndurbúðum), límmiðar til merkinga, trekt og gömul kaffikvörn (valfrjálst), kaffifilterar, trektarglas, dropateljari, gúmmíhanskar og nokkrar tuskur til að þurrka með, þykkur hvítur pappúr og penslar.
Byrjið að vinna með jarðvegsáferðina með því að mala jarðveginn og sigta til að ná fram mjög fínu dufti.
Setjið pott á helluna, bætið vatni í hann ásamt jarðveginum og salti (smá klípu) og látið malla en ekki sjóða.
Prófið ykkur áfram með sýrustig jarðvegarins með því að nota matarsóda og edik. Þið getið notað eina teskeið á bolla.
Látið blönduna malla í um einn klukkutíma eða þar til vatnið í pottinum tekur á sig djúpan lit. Notið pappírsrönd til að prófa litinn.
Setjið kaffipoka í trekt og trektina svo í glerkrukku með víðum barmi. Vellið vatninu rólega efst til að sía blekið.
Setjið arabískt gúmmí í glerflösku (um einn hluta á móti tíu hlutum af bleki). Hellið bleki í flöskuna en passið að skilja eftir svolítið pláss efst í henni. Lokið með þéttu loki.
Merkið blekið ykkar.
Notið blekið til listsköpunar.