Námslýsing: Þeir sem njóta þess að fara í gönguferðir ættu að velja þessa valgrein. Fyrsti tíminn verður bóklegur, þ.e. farið yfir þær göngur sem farið verður í og kynningu á útbúnaði fyrir fjallgöngur og útivist almennt. Hugmyndin er að byrja á göngu í nærumhverfinu. Næst er að fara svo í strætó og ganga í Elliðaárdalnum og öðrum stöðum í Reykjavík, Hafnarfirði og/eða Mosfellsbæ.
Markmiðið með þessari valgrein er að nemendur:
· skilji mikilvægi góðs útbúnaðar þegar farið er í lengri göngur og göngur á fjöll
· njóti útivistar í íslenskri náttúru á öruggan og ábyrgan hátt
· beri virðingu fyrir náttúrunni og gangi vel um hana.
Námsmat: Ástundun og markmið metin í hverri göngu.
Kennslustundafjöldi: Tímarnir verða almennt ekki 80 mínútur heldur verða þeir u.þ.b. 120 – 180 mínútur (2-3 klst.) og því er valið líklega búið í lok október.