Lightspeed

Hvað er Lightspeed?
Lightspeed er veflægt umsjónarkerfi sem snjalltæki (iPaddar) Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur eru skráð inn í . Með Lightspeed er meðal margs annars hægt að halda búnaðarskrá, uppfæra stýrikerfi, dreifa hugbúnaði (öppum) og strauja tæki. Eins er hægt að fletta týndu tæki upp og gera það ónothæft ef því er stolið.


Hagnýtir tenglar


Þjónusta

Upplýsingatæknideild Reykjavíkur (UTR) veitir tæknilega þjónustu við snjalltæki og Lightspeed. 

Athugið að á starfsstöðum SFS eru víða Lightspeed umsjónaraðilar sem hafa aðgang inn í kerfið. 

Fræðsluefni

Lightspeed 1: Grúppur

Hér er fjallað um hópaumsjónakerfið í Lightspeed, hvernig það er byggt upp og hvernig hægt er að stofna nýjar grúppur. Sýnt er hvernig notendum og tækjum er bætt í grúppu, sem gerir að verkum að öpp og pólisíur grúppunnar yfirfærast á notandann eða tækið.

Lightspeed 2: Pólisíur

Hér er fjallað um tækjastýringu í Lightspeed, hvernig restriction pólisíur virka og erfast niður á við í grúppukerfinu. Sýnt er hvernig á að virkja slíkar pólisíur og velja viðeigandi stað í grúppukerfinu fyrir þær, með það fyrir augum að pólisían virki aðeins á þá sem kosið er.

Lightspeed 3: Öpp

Hér er fjallað um hugbúnaðardreifingu í Lightspeed, hvernig hægt er að sjá hvaða öppum hefur verið úthlutað og til hverra. Sýnt er hvernig ókeypis eða keypt öpp eru sótt og þeim úthlutað á grúppur, sem og hvernig öpp eru fjarlægð aftur. Ef um er að ræða keypt öpp er þannig hægt að úthluta þeim aftur á annað tæki eða notanda.

Lightspeed 4: Tæki

Hér er fjallað um tækjaumsjón í Lightspeed, hvernig hægt er að sjá ýmsar upplýsingar um tæki og notkun þess. Sýnt er hvernig hægt er að endur-synca tæki við kerfið, hvernig má finna týnt tæki, opna læst tæki og strauja tæki sem skilað er.