Innihald
100gr döðlur
100gr (appelsínu, ef vill) suðusúkkulaði
300 gr bage marzipan
Aðferð
Mauka döðlur og súkkulaði, í matvinnsluvél
Fletja út marzipan á milli bökunarpappíra
Hella mauki yfir og dreifa og rúlla saman við marzipan
Hnoða saman þar til orðið vel blandað, einn massi
Rúlla í 2-3cm pylsur
Fletja aðeins út í sporöskjulaga eða þríhyrningslaga bita
Skera í 1-1.5cm bita
Raða með skurðhliðar niður og upp
Kremja saman toppinn til að fá stærri og áhugaverðari bökunarflöt
Bakað efst í 230°C heitum ofn á grilli í 4 mín
Eflaust töluverður munur á ofnum, fylgjast vel með
Á ekki að bakast í gegn því þá verða bitarnir seigari.
Tilbúið þegar dekkstu fletir eru orðnir vel dökkir
Gott að bræða smá súkkulaði (ofninn er heitur) og setja á botninn á bitunum, setja á smjörpappír og kæla í smátíma í frysti
Líka hægt að dýfa súkkulaðinu ofan í malaðar pistasíur / möndlur /hnetur