Betra að hafa ekki of þunnt
250 g spelt 50/50 gróft og fínt
3 tsk vínsteinslyftiduft
1/2 tsk sjávarsalt
2 msk olía
130-140 ml heitt vatn
Hitið ofninn í um 185 gráður. Blandið fyrst þurrefnunum saman, bætið svo olíunni við og heita vatninu og hnoðið í deig. Búið til lengju sem þið skerið í 2-3 jafnstóra bita og fletjið hvern og einn út þunnt. Notið bökunarpappír undir pítsuna á bökunarplötunni og bakið í ofni í um 5 mínútur.
Af https://www.mbl.is/smartland/heilsa/2012/01/13/geggjada_fostudagspitsan_hennar_ebbu/
Glútenlaus, ekki hafa of þunnan
1 dl maísmjöl
1 dl hörfræjamjöl
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft - prófa 2
1 dl vatn
1 msk olía
Taka 2 - með geri
2 bollar hveiti
1 bolli gróft spelt
½ pakki ger (6 gr, tæpar 2 tsk)
2 tsk. salt
½ tsk sykur
½ bolli volgt vatn
2 msk olía
Hræra þurrefni og hnoða saman í mixer (ekki hrærivél) - Bæta við volgu vatni ef þarf
Láta hefast á volgum stað í 15 mín. (velgja ofn í 50c?)
Fletja út þunnt á smjörpappír á milli tveggja blaða og bakað í ofni við 180 gráður
Síðar?
Ætlaði að setja lyftiduft líka en gleymdi því!
Dugar í rúmlega eina stóra ofnskúffu / ofnplötu pizzu
Fyrir 2 pizzur á pizzastein - Í vinnslu
Efni
300ml gróft spelt
4 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
100+ ml heitt vatn
1-2 tsk olía
Aðferð
Þurrefnum hrært saman
Olíu hrært í vatn
Vatni hellt í þurrefni
Hrært og hnoðað saman, bætt við vatni eða spelti ef þarf
Flatt út
Bakstur á pizzu
Hita grillið með pizzasteini í í 250 með High á 2 hægri brennurum og Low á vinstri brennara.
Þegar botn er kominn á steininn minnka þá miðbrennara í Low þangað til pizza er bökuð.
Aldrei að vita nema þetta virki :D