Innihald
130gr döðlur
100gr (50% appelsínu, 50% venjulegt) suðusúkkulaði
300 gr bage marzipan
Aðferð
Skera döðlur í litla bita með hníf til að vera viss um að séu engir steinar
Mauka döðlur og súkkulaði í matvinnsluvél (50% hraði í okkar), þar til mauk
Fletja út marzipan á milli bökunarpappíra
Hella mauki yfir og dreifa og blanda og hnoða vel saman við marzipan þar til orðið einn massi
Rúlla í 2-3cm pylsur
Skera í 1-1.5cm bita
Raða með skurðhliðar niður og upp
Kremja saman toppinn til að fá stærri og áhugaverðari bökunarflöt
Bakað efst í 230°C heitum ofn á grilli í 3-4 mín
Eflaust töluverður munur á ofnum, fylgjast vel með
Á ekki að bakast í gegn því þá verða bitarnir seigari.
Tilbúið þegar dekkstu fletir eru orðnir vel dökkir
Gott að bræða smá súkkulaði (ofninn er heitur) og setja á botninn á bitunum, setja á smjörpappír og kæla í smátíma í frysti
Líka hægt að dýfa súkkulaðinu ofan í malaðar pistasíur / möndlur /hnetur