Grjónapotturinn verður að vera alveg þurr á úthliðinni (ef notaður rafmagnshrísgrjónapottur)
Skola grjón vel áður, nóg að láta renna kalt vatn á þau í 10-15 mín. með lágmarkshandavinnu
Láta vatnið renna vel af fyrir suðu
2 bollar grjón / 0.47 lítra af vatni
Passar í 9 rúllur, 3 litlar og 6 millistórar, ef frekar lágt hlutfall grjóna miðað við ílæti
3 bollar grjón / 0.65 lítra af vatni
Ef þörf á stærri skammti
4 bollar grjón / 0.8 lítra af vatni
Hýðisgrjón / 1 bolli grjón í 2.8 bolla af vatni
3 bollar hvít og 1 bolli hýðis = nóg fyrir ca. 6 fullorðna ef næstum því bara rúllur, koddar taka hlutfallslega meira af grjónum
Setja vatn og grjón í hrísgrjónapott og kveikja á
Gera klára grunna, stóra skál (ekki stál) og edik til að taka við grjónum.
Pottur má alls ekki gleymast eftir að suðu er lokið, taka grjónin strax uppúr, smakka samt fyrst til að athuga hvort nokkuð hörð miðja. Þá má prófa að geyma í 1-2 mín. í potti
Dreifa grjónum í grunna, stóra skál.
Vökva grjón með edikblöndu og hræra vel á meðan
1/4 bolli sushi-edik per 1 bolla grjón, til að krydda með eftir suðu, ekki samt alveg ¾ í 3 bolla
Smakka til, ekki setja allt strax
Búa til edikblöndu
1 bolli sushi-edik
50ml sykur (sushi bolli)
12gr salt
Bræða salt og sykur í edikinu við mjög vægan hita og kæla
Kæla með blævæng eða í roki í 2 mín.
Breiða rakan klút yfir og láta þau standa í ca. 15 mín
Ekki gott að láta standa mikið lengur en 30 mín
Sushi-edik blanda til að bleyta hendur og hnífa með í vinnunni:
1 hluti edik
9 hlutar vatn