Efni
4 dl. Haframjöl
3 dl. Hveiti
3 dl. Púðursykur (sykur)
6 dl. Súrmjólk eða AB mjólk
2 tsk. Lyftiduft
2 tsk. Kanill
2 tsk. Negull
2 tsk. Kakó
2 tsk. Matarsódi.
Aðferð:
Öllu blandað saman með sleif, nægir í 2 brauð. Bakað við 175°c í ca. 45 mín. Ekki baka aftur tvöfalda nema mikið liggi við :)
Ef þú vilt tvöfalda uppskriftina þá dugar 1 ltr. af súrmjólkinni. Ekki spyrja mig af hverju það er – þetta sel ég ekki dýrara en ég keypti en það virkar. Einföld uppskrift er samt nóg í 2 brauð!