Guðbjörg Oddsdóttir er sérkennslustjóri og heldur hún utan sérkennslu leikskólans. Hún vinnur í samstarfi við sérkennara, deildarstjóra og aðra kennara, gerir einstaklingsnámskrár fyrir þau börn sem þurfa sérstuðning og heldur utan um teymi þeirra. Stuðningur barna í Seljakoti fer fram innan sem utan deilda og eru foreldrar virkir þátttakendur í teymisvinnu barnanna.
Ef þörf er á þátttöku fleiri sérfræðinga er Seljakot í samstarfi við Suðurmiðstöð. Þar starfa m.a. sérkennsluráðgjafar, sálfræðingar, talmeinafræðingar og félags- og hegðunarráðgjafar. Þeir veita foreldrum, kennurum og öðrum sem koma að barninu leiðsögn og fræðslu ef þurfa þykir. Sálfræðingar og talmeinafræðingar á Suðurmiðstöð sinna einnig frumgreiningum á börnum í leikskólum í Breiðholti.