Margrét Rajani er verkefnastjóri fjölmenningar í Seljakoti en í leikskólanum eru mörg börn af erlendum uppruna.
Margrét heldur utan um fjölmenningarstarf og málörvun tvítyngdra barna í leikskólanum auk þess að hafa yfirsýn yfir heimamál þeirra, foreldrasamstarf og túlkaþjónustu. Hún sinnir einnig fræðslu til kennara varðandi málaflokkinn og fylgir því eftir að allir taki þátt í að efla og styðja við börn af erlendum uppruna og fjölskyldur þeirra.
Málstefna Seljakots
Íslenskan er tungumálið okkar og við tölum íslensku í leikskólanum. Við lesum, syngjum, spjöllum saman, leikum með orðin, hlustum hvert á annað og nýtum okkur fjölbreyttar kennsluaðferðir til að auka orðaforða og efla málþroska.
Við sýnum öðrum tungumálum áhuga og hvetjum til þess að borin sé virðing fyrir þeim og þau gerð sýnileg í leikskólanum þó að íslenskan sé leikskólamálið. Þannig tryggjum við að öll börn geti verið stolt af sínu heimamáli, hvort sem það er íslenska eða annað tungumál.