Þjónusta í þágu farsældar barna er ný nálgun í þjónustu við börn og barnafjölskyldur og er að festa sig í sessi um land allt.
Farsæld barna nær yfir þær aðstæður sem skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðislegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar.
Farsæld barna á að sjá til þess að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og að þau fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum. Með því að tengja þjónustuna saman og vinna í sameiningu að farsæld barna verður auðveldara fyrir börn og foreldra að fá aðstoð við hæfi.
Guðbjörg, sérkennslustjóri, er tengiliður farsældar og skal tengiliður hafa viðeigandi þekkingu til að geta verið foreldrum og barni innan handar. Hann ráðleggur þeim og aðstoðar við að rata í gegnum kerfið og sækja þjónustu við hæfi. Tengiliður skal vera aðgengilegur öllum börnum og foreldrum á Íslandi.
Hér má lesa meira má farsæld barna