7 bekkur
Hæfniviðmið Hönnun og smíði – 7. bekkur
-Valið og notað á réttan hátt helstu verkfæri og mælitæki.
-Lesið einfalda teikningu, smíðað eftir henni og unnið eftir hönnunarferli frá hugmynd að lokaafurð.
-Útskýrt réttar vinnustellingar og valið viðeigandi hlífðarbúnað.
-Gert grein fyrir uppruna og notagildi þess efniviðar sem notaður er í smíðastofunni.
-Gert grein fyrir hvort efni séu hættuleg og hvernig hægt er að endurnýta og flokka efni sem fellur til í smíðastofunni.
-Lýst hvernig tæknin birtist í nánasta umhverfi hans og almennt í samfélaginu.
-Útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd til afurðar.
-Sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði.
-Gert grein fyrir menningarlegu hlutverki verkgreina.
4 Reglur smíðinnar
Skipulag. Óskipulag er einn af göllum smíðavinnunnar. Það að vita bara nokkurn veginn, eða jafnvel ekki neitt, hvað við erum að fara að vinna að gerir vinnu okkar óskýra og óskipulagða. Við teiknum hugmyndinar okkar, veljum efni, ákveðum hvernig hugmyndirnar eru smíðaðar og settar saman.
Tími. Hraði er einn af óvinum handverks- og smíðavinnu. Kæruleysi, stress og óþolinmæði eykur ekki bara líkur á slysum heldur eykur líkur á mistökum. Það eru líma miklar líkur á að smíðastykkin okkar verði ekki falleg, og jafnvel ónothæf. Öll vinna tekur tíma. Því betur sem við nýtum tímann sem við höfum því meira tækifæri höfum við til að vanda til verka. Við nýtum því timann okkar vel til að gera smíðastykkin okkar góð.
Vandvirkni. Hugsanaleysi er annar af okkar helstu óvinir í smíðavinnu. Þess vegna gefum við okkur tíma vil að hugsa um vinnuna sem við erum að vinna. Fylgjumst með verkfærunum vinna, horfum á eigið handverk og erum vandvirk.
Gæði. Illa samsett og illa formuð smíðastykki eru nærri undantekningalaust léleg í gæðum, og geta orðið verðlaus í okkar augum og annarra. Þess vegna skipuleggjum við okkar, gefum okkur tíma, og vöndum til verka því þá eru mestar líkur á að smíðastykkin okkar verði falleg og endingargóð.
Smíðaverkefni
Hannaðu og smíðaðu lyklakippu úr pexígleri
Hannaðu og smíðaðu vélarm sem knúinn er af sprautum.
Allt sem þú þarft að vita um teikniforritið okkar
Hér er stutt myndband sem sýnir hvernig við borum holu í steinvegg og setjum festingar eins og svokallaða múrtappa eða "múrbolta"