Model Heimsbúar
Model Heimsbúar
Byggt á hugmyndum 'Model United Nations' þar sem nemendur setja sig í spor sendinefnda og taka þátt í umræðum, rökræðum og samvinnu með gagnrýnni hugsun að leiðarljósi.
Model Heimsbúar byggir á því að nemendur setji sig í spor stofnanna Sameinuðu þjóðanna, nýti sér þessa vefsíðu til þess að læra út á hvað hver stofnun gengur og hvernig hún getur unnið með öðrum stofnunum til þess að kljást við illviðráðanleg vandamál Heimsmarkmiðanna.
Verkefnið hvetur því að umræður, rökræður og samvinna skapist sem og til að auka borgaravitund, vitund á ýmsum stofnunum og hvernig skuli nálgast illviðráðanleg vandamál Heimsmarkmiðanna með það markmið að gera heiminn að betri stað fyrir alla.
Best væri að skipta hópnum upp þannig 2-3 séu saman með eina undirstofnun. Kennari velur illviðráðanlegt vandamál og tími gefinn fyrir hvern hóp til að finna út hvað sín stofnun getur gert til þess að takast á við vandamálið. Hvaða nýtt vandamál "lausnin" þeirra gæti skapað og hvaða stofnun þau myndu vilja vinna með til að fá sem bestan árangur. Gefa þarf hópum ágætan tíma til þess að kynna sér stofnanirnar og vandamálin.
Umræður og rökræður geta svo myndast á meðal hópanna þar sem kynntar eru lausnir út frá hverri stofnun.
Markmið verkefnisins er ekki að fá eina loka niðurstöðu eða algilda lausn á vandamálum heldur vekja umræður og áhuga. Kennarar geta nálgast verkefnið samhliða nemendum sínum, sem stuðlar að sameiginlegri þekkingu.
Framkvæmd:
Hópar (2-3) er úthlutað stofnun sem þeir þurfa að kynna sér.
Spyrill (kennari) velur illviðraðanlegt vandamál (sem getur verið tengt öðru efni sem er verið að fjalla um í kennslustundum) sem hver hópur þarf að rannsaka útfrá sinni stofnun.
Hver hópur þarf að undirbúa 2-5 mínútna ræðu um hvernig stofnunin þeirra myndi glíma við illviðráðanlega vandamálið.
Þá byrjar ráðstefnan; Model Heimsbúar.
Spyrill kynnir illviðraðanlega vandamálið í stuttu bragði og biður fyrsta hópinn að flytja sína ræðuna.
Það er mikilvægt að fylgjast með ræðum annarra hópa þar sem eftir hverja ræðu getur annar hópur gefið mótrök (max. 2 min) ef þeim finnst að hópurinn sem kynnti lausnina er að rífa niður lausnina sem þau höfðu í huga.
Nemendur eru hvattir til þess að taka glósur á ræðunum því nú kemur pása þar sem hóparnir geta fundað sín á milli.
Eftir að hóparnir eru búnir að funda sín á milli, þurfa þeir að semja nýja ræðu, þar sem þau þurfa að taka tillit til hvað hinir hóparnir sögðu og hvað fór fram á fundunum.
Spyrill biður hvern hóp að flytja lokaræðu, en leggur áherslu á að að ekki er til ein lausn við illviðraðanlegum vandamálum.
Að ráðstefnunni lokinni hafa nemendur ígrundað mismunandi lausnir og unnið saman í að finna það sem er illviðraðanlegt við þessi vandamál.