SDG lab er frumkvæði skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Genf, sem býr til vettvang fyrir samstarf og nýja hugsunarhætti með því að tengja saman fjölbreytta aðila til að vinna að heimsmarkmiðunum. Fjallað er um öll heimsmarkmiðin sem heild á kerfisbundinn hátt til að auka hraðann á samþættri breytingu. Grunnþjónusta SDG Lab er að koma saman ólíkum aðilum til að nýta færni sýna frá mismunandi sviðum og þannig læra af hvort öðru í þágu varanlegra lausna á vandamálum tengdum heimsmarkmiðunum. Með þessum hætti aukast líkurnar á því að nýsköpun verði að veruleika og ýtir undir að fleiri sem vita ekki hvernig þeir ættu að leggja sitt af mörkunum tengist öðrum og mynda hópa til að ná sameiginlegum markmiðum. Með því að draga saman fulltrúa frá þróunarsviðum og fjármálum er hægt að greiða fyrir fjárfestingum í heimsmarkmiðunum og skapa kraftmikið samstarf.
SDG lab vinnur því með fjölbreyttum alþjóðlegum hagsmunaðilum til að hjálpa öðrum að innleiða heimsmarkmiðin með auknum hraða.
SDG lab vinnur út frá nokkrum eiginleikum; að magna upp umræðuna með því að búa til vettvang þar sem sögur af bæði velgengni og mistökum veita lærdóm sem nýtist í framtíðar stefnumótun; spyrja spurninga sem leiðir af sér nýja hugsunarhætti og nýjar leiðir til aðgerða; vera tengiliður og þar með skapa ný tækifæri fyrir aðila til að deila þekkingu, reynslu og hugmyndum.
Hvers vegna er SDG lab mikilvæg?
Því hún stuðlar að bættu samstarfi og auknum nýjungum í að vinna að varanlegum lausnum fyrir heimsmarkmiðin.
Heimsmarkmið sem að SDG lab vinnur meðal annars að
SDG lab vinnur að auknu samstarfi með öll heimsmarkmiðin í huga og býr þannig til vettvang þar sem nýjungar á öllum sviðum geta myndast og orðið að veruleika.
Heimildir:
SDG Lab. (e.d.). About the Lab. https://www.sdglab.ch/en/about
SDG Lab. (e.d.). Activating the 2030 agenda. https://www.sdglab.ch/
SDG Lab. (e.d.). Welcome. https://www.sdglablearning.org/