Alþjóðaviðskiptamiðstöðin (International Trade Centre, ITC) er sameiginleg stofnun Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og Sameinuðu þjóðanna. Markmið stofnunarinnar er að hjálpa þróunar- og umbreytingarlöndum að ná sjálfbærri þróun í gegnum útflutning. Efnahagslegar áskoranir sem heimurinn stendur frammi fyrir lendir illa á viðkvæmustu löndunum sem eiga í félagslegum og efnahagslegum erfiðleikum. ITC býður því fram þjónustu til minni fyrirtækja, stefnumótunaraðila og viðskiptastofnana í þróunarlöndum sem felur í sér viðskiptaþjálfun, ráðgjafaþjónustu og mikið magn gagna úr viðskiptagreind. Þar með eykst samkeppnishæfni minni fyrirtækja og til verður betra regluumhverfi fyrir viðskipti. Stofnunin eykur því aðgang að viðskiptagreind, styrkir viðskiptastofnanir, bætir stefnumótun á sviði viðskipta í þágu fyrirtækja og byggja útflutningsgetu fyrirtækja til þess að bregðast við tækifærum á markaðnum. Stofnunin leggur sig einnig fram til þess að auka valdeflingu kvenna, ungmenna og flóttafólks í gegnum vinnur. Verkefnin, þjónustur og gögnin nýtast til að auka rafræn tengsl og ýta áfram breytingunni yfir í sjálfbær viðskipti.
Verkefni sem að ITC vinnur að geta verið allt frá því að rækta og markaðssetja kaffibaunir og ananas yfir í það að styðja við sprotafyrirtæki og stuðla að siðferðislegri tísku.
Stofnunin leggur upp með að nýta sér sjö stoðir í sínum stjórnarháttum: Vera gagnsæ þar sem trúverðugleiki og traust mynda stóran hlut vinnunar; árangursmiðaða stjórnun tengd forgangsröðun verkefna; óháð mat á framlagi stofnunarinnar; áhættustjórnun; skýrslugerðir sem stuðla að gagnsæi; stjórnun og eftirlit sem tryggir að árangur er í takt við stefnur; og fjármagnsáætlanir.
Hvers vegna er ITC mikilvæg stofnun?
Því hún styður við aukin viðskipti, viðskiptagetu og þróun í þróunarlöndum með að stuðla að auknum útflutningi.
Heimsmarkmið sem að ITC vinnur meðal annars að:
Alþjóðleg viðskipti og fjárfestingar eru viðurkenndur þáttur í að ná heimsmarkmiðunum. ITC leggur sitt af mörkunum með því að vinna með stefnumótendum, stofnunum sem styðja viðskipti og öðrum samstarfsaðilum til að styðja alþjóðlega samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Heimildir:
ITC. (e.d.). About us. https://intracen.org/about-us
ITC. (e.d.). Governance. https://intracen.org/about-us/governance
ITC. (e.d.). Sustainable Development Goals. https://open.intracen.org/sustainable-development-goals