Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (e. UN Development Programme) leiðir veginn þegar það kemur að alþjóðlegri þróun, en unnið er í 170 löndum til þess að sporna gegn fátækt og minnka ójöfnuð. Þróunaráætlunin styður við lönd með því að aðstoða við að móta stefnur, auka leiðtogahæfileika, samstarfs eiginleika, getu stofnanna og þá þrautseigju sem þarf til að ná heimsmarkmiðunum. Sjálfbær þróun, lýðræði og friður, og loftslags- og hamfaraþol eru megin áherslur Þróunaráætlunar.
Sérfræðiþekking Þróunaráætlunarinnar býður upp á að tengja lönd við þá þekkingu, úrræði og tengingar sem þau þurfa til þess að ná tímamótaskrefum í þeirra þróun. Með því að bjóða upp á sérfræðingu og þekkingu í málaflokkum eins og Mannfólk, Plánetan, Velmegun, Friður og Samstarf, getur þróunaráætlunin stutt við breitt svið af nauðsynlegri þróun í átt að sjálfbærni og heimsmarkmiðunum. Til að mynda í málefnum kynjanna, þá vinnur Þróunaráætlunin í 170 löndum til að aðstoða þau við að tileinka sér aðferðir, umbæta lög sem fela í sér mismunun, sem og hanna og framkvæma opinberar stefnur sem ýta undir jafnrétti kynjanna og eykur valdeflingu kvenna. Þannig aðstoða sérfræðingar, í málefnum kynjanna, ríkisstjórnir við að bera kennsl á og fjalla um kynjavíddina í tengslum við þróunar á sviðum eins og fátækt.
Hvers vegna er Þróunaráætlun Sameinuðu Þjóðanna mikilvæg?
Því hún styður og aðstoðar við þróun landa sem leiðir af sér minni fátækt, aukinn jöfnuð og aukna getu til að takast á við ýmis vandamál, náttúruleg eða manngerð.
Heimsmarkmið sem að Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna vinnur meðal annars að
Markmið 1. (Engin fátækt)
Tryggja að fátækir hafi jafnan rétt og aðgang að efnahagslegum úrræðum, grunnþjónustu, eignarrétti, náttúruauðlindum og nýrri tækni.
Markmið 2. (Ekkert hungur)
Styðja sjálfbæra ræktun og ýta undir sterkan landbúnað til að viðhalda vistkerfum og styrkja aðlögunarhæfni gagnvart loftslagsbreytingum.
Markmið 4. (Menntun fyrir alla)
Tryggja að börn og fullorðnir hafi aðgang að góðri menntun, sem innifelur þekkingu og kunnáttu sem stuðlar að sjálfbærni.
Markmið 5. (Jafnrétti kynjanna)
Tryggja að konur hafi fullan rétt og tækifæri til að vera leiðtogar á öllum stigum í pólitík og efnahags- og þjóðlífinu.
Heimildir:
UNDP. (e.d.). About Us. https://www.undp.org/about-us
UNDP. (e.d.). Expertise. https://www.undp.org/expertise