Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (World Health Organisation, WHO) gegnir mikilvægu hlutverki í að leiða heiminn í því verkefni að gefa öllum jöfn tækifæri á því að eiga heilbrigt líf. Stofnunin var stofnuð árið 1948 til þess að leiða saman lönd, fólk og samstarfsaðila til þess að stuðla að heilbrigði heimsins og þjónusta þá sem minna mega sín.
Stofnunin veitir löndum tæknilega aðstoð, setur viðmið og safnar saman gögnum um heilsuvandamál í heiminum. Stofnunin sér um að stýra og samræma viðbrögð við heilsufarsástandi eins og COVID-19. Með því að styðja sig við vísindi hefur stofnunin það að markmiði að ýta undir bætta heilsu allt frá óléttu til gamals aldurs.
Stofnunin er virk í öllum heimshornum en hún vinnur með sínum 194 aðildaríkjum til að betrumbæta staðbundin heilbrigðiskerfi og vera til staðar til að samræma viðbrögð við stærri áskorunum. Samvinna er stoð og stytta alls sem WHO vinnur að. Samstarf gerir það mögulegt að hægt sé að koma nauðsynlegum lyfjum og tækjum á rétta staði á réttum tíma. Stofnunin vinnur einnig að því að koma öllum saman, hvort sem það eru leiðtogar ríkja, stofnanir, borgaraleg samfélög eða rannsakendur í það mikilvæga verk að veita öllum heilbrigt og öruggt líf.
Ákvörðunartaka fer fram á árlega Alþjóðaheilbrigðisþinginu sem er æðst ráðandi innan WHO ásamt framkvæmdarstjórninni sem ýtir af stað þeim ákvörðunum sem eru samþykktar, sem og undirbúa málefni fyrir þingið til að fjalla um.
Hvers vegna er WHO mikilvæg?
Því WHO eflir heilbrigði heimsins með því að vekja athygli á og leiða samstarf í átt að betri heilsu.
Heimsmarkmið sem WHO vinnur að
Markmið 3. (Heilsa og vellíðan)
Aðaláhersla WHO er að bæta heilbrigði allra á öllum aldri með því að ýta undir aðgang að heilbrigðisþjónustu og auka vitund um heilbrigði.
Heilsa og vellíðan sem heimsmarkmið, getur talist sem miðja allra markmiðanna. Til að bæta og tryggja heilsu og vellíðan fyrir alla þarf að uppfylla öll hin markmiðin.
Til dæmis:
Markmið 6: með því að bæta aðgengi að hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu.
Markmið 12: ýta undir ábyrga neyslu á sýklalyfjum til að sporna gegn ónæmi.
Markmið 4: styðja menntun og skilning á heilsu og heilsujafnrétti.
Markmið 14: styðja við endurbyggingu fiskistofna til þess að ýta undir öruggt og fjölbreytt mataræði.
Markmið 17: Virkja samstarfsaðila til þess að ná markmiðunum.
Markmið 2: Leggja áherslu á orsök og afleiðingar vannæringar
Heimildir:
WHO (e.d.). About WHO. https://www.who.int/about
WHO (2017, 10. febrúar). Monitoring the Health-Related Sustainable Development Goals. https://www.who.int/docs/default-source/searo/hsd/hwf/01-monitoring-the-health-related-sdgs-background-paper.pdf?sfvrsn=3417607a_4#:~:text=Introduction%20to%20the%20Sustainable%20Development%20Goals%20(SDGs)&text=The%20health%20goal%20