Skala upp næringu (Scaling Up Nutrition, SUN). Áhyggjur af vandamálum tengd vannæringu í heiminum uxu í kjölfari efnahagshrunsinsj árið 2008. Sérstaklega voru áhyggjur af fátækustu löndum heims en rannsóknir studdu það að inngrip í næringu væru hagstæðustu inngripin sem hægt væri að gera til að ýta undir þróun. Margt þyrfti að breytast í þáverandi sundraða og vanhæfa alþjóðlega fyrirkomulagi því persónulegur og efnahagslegur kostnaður af vaxtarskerðingu er mikill. Út frá því kemur hreyfingin SUN sem setur upp forgangsröðun í hjarta alþjóðlegrar aðgerða til að bæta næringu.
Ákveðin lönd eru tekin inn sem SUN lönd (fátækari lönd heims), þjóðarhreyfingar innan þeirra mynda með sér SUN kerfið þar sem þau funda meira og geta svo átt í nánari samstarfi og deilt fræðslu og þekkingu á milli sín. Sérþekking SUN hreyfingarinnar er áhersla hennar á að byggja félagslegt, efnahagslegt og pólitískt umhverfi sem er starfi sínu vaxið til að tryggja að börn ná að uppfylla sína möguleika. Það er gert með fjórum stefnumótandi markmiðum: Stækka og viðhalda pólitísku kerfi sem ýtir undir næringu; forgangsraða og stofnanagera árangursríkar aðgerðir sem styðja við góða næringu; innleiða árangursríkar aðgerðir sem samræmast sameiginlegum niðurstöðuramma; og nýta og auka fjármagn til næringar á árangursríkan hátt.
Ríkisstjórnir SUN landanna leiða veginn í að sameina fólk sem koma frá borgaralegum samfélögum, Sameinuðu þjóðunum, fjárveitendum, fyrirtækjum og rannsóknarstofnunum allt í þeim tilgangi að bæta næringu. Vegvísir hreyfingarinnar hjálpar að upplýsa mikilvægi næringar sem alþjóðlegt mál, mál sem er óaðskiljanlegur hluti þess að ná heimsmarkmiðunum.
Hvers vegna er SUN mikilvæg stofnun?
Því hún setur aukna áherslu á vannæringu sem mein gegn þróun. Einnig ýtir hún undir varanlega baráttu við vannæringu með því að gera SUN löndunum kleift að leiða veginn.
Heimsmarkmið sem að SUN stuðlar meðal annars að
Betri næring er mikilvæg forsenda að mörgum öðrum heimsmarkmiðum. Með beina tengingu í markmið 2. (Ekkert hungur) þar sem stefnt er að því að ná mataröryggi, bæta næringu og stuðla að sjálfbærum landbúnaði. En einnig hefur næring margt að segja um árangur annarra markmiða, eins og markmið 4. (Menntun fyrir alla) en góð næring eykur greindarvísitölu, markmið 3. (Góð heilsa) en grunnur að góðri heilsu er góð næring, og markmið 16. (Friður og réttlæti) að uppræta vannæringu styður við stöðugri samfélög. Að ná öðrum markmiðum styður svo næringu eins og markmið 10. (Minnka ójöfnuð) en 50% af löndum upplifa vannæringu, markmið 6. (hreint vatn og hreinlætisaðstaða) en 50% af vannæringu er tengt slæmu hreinlæti.
Heimildir:
SUN. (e.d.). About SUN countries. http://scalingupnutrition.org/sun-countries/about-sun-countries/
SUN. (e.d.). Nutrition and the Sustainable Development Goals. https://scalingupnutrition.org/nutrition/nutrition-and-the-sustainable-development-goals/
SUN. (e.d.). The history of the SUN Movement. https://scalingupnutrition.org/about-sun/the-history-of-the-sun-movement/
SUN. (e.d.). The vision and principles of SUN. https://scalingupnutrition.org/about-sun/the-vision-and-principles-of-sun/