Velkomin á heimasíðu Heimsbúa. Hér er hægt að finna...
Velkomin á heimasíðu Heimsbúa. Hér er hægt að finna...
Verkefnið Heimsbúar hvetur nemendur til að setja sig í spor starfsmanna fjölbreyttra alþjóðlegra stofnana sem vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna. Með þátttöku í umræðum um illviðráðanleg flókin vandamál upplifa nemendur fjölbreytt sjónarhorn þegar lausna er leitað við vandanum. Með þátttökunni kynnast nemendur stofnunum sem Ísland er aðili að. Þeir sjá hvað taka þarf tillit til svo áherslur alþjóðlegra samninga nái fram að ganga. Með því að kynna heimsmarkmið sameinuðuþjóðanna í tengslum við flókin illviðráðanleg vandamál sem tengjast daglegu lífi nemenda upplifa þeir að víðtæk þátttaka almennings skiptir miklu máli fyrir vinnu að heimsmarkmiðunum. Heimsbúar veitir forsendur fyrir nemendur að upplifa mikilvægi þess að blása lífi í alþjóðlegt samstarf um sjálfbæra þróun og grípa til aðgerða. Þau upplifa sjálf í gegnum eigin nálgun þegar þau skoða í kjölinn áherslur ólíkra stofnanana að Heimsmarkmið númer 17 snýr að því að efla samstarf um sjálfbæra þróun og er ákall til allra ríkja um að gera skyldu sína.