Barnahjálp Sameinuðu þjóðana (e. United Nations Children’s Fund, UNICEF) er með það að leiðarljósi að veita börnum þá mannúðar- og þróunaraðstoð sem þau þurfa og standa vörð um málefni barna allstaðar í heiminum. UNICEF vinnur því út um allan heim, einnig á afskekktum stöðum til að ná til verst settu barnanna. UNICEF vinnur þvert á landamæri meiri en 190 landa og svæða með það hugarfar að gera hvað sem er til þess að hjálpa börnum að lifa, dafna og uppfylla alla sína möguleika. UNICEF afhendir einna mest af bóluefnum í heiminum, styður við góða næringu barna, öruggt vatn, aðgang að hreinlætisaðstöðu, góða menntun og uppbyggingu á færni barna.
UNICEF á rætur sínar að rekja til enda seinni heimsstyrjaldarinnar en þá var settur á laggirnar sjóður sem var neyðaraðstoð fyrir börn og mæður sem urðu fyrir áhrifum stríðsins. Nokkrum árum seinna var stofnunin formlega stofnuð til að setja víðari áherslur á langtíma þarfir barna og kvenna í þróunarríkjum.
UNICEF leggur áherslu á að þróa samfélagsþjónustu sem ýtir undir heilsu og vellíðan barna. UNICEF vinnur því í gegnum sínar mörgu svæðisskrifstofur, sem aðstoða svo landsskrifstofur við að ýta áfram mikilvægum málefnum sem varða börn og konur. Yfirumsjón með öllu ferlinu fer svo fram á höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York, Bandaríkjunum. En þar er starfrækt framkvæmdarstjórn með 36 fulltrúum ríkisstjórna, sem ákvarðar stefnur, samþykkir verkefni og stýrir fjárhagsáætlunni. Sú vinna er samræmd af skrifstofu forseta og varaforseta UNICEF.
Hvers vegna er UNICEF mikilvæg stofnun?
Því hún veitir nauðsynlega hjálp til þeirra barna sem þurfa hana, sem og tala fyrir réttindum barna allstaðar í heiminum.
Heimsmarkmið sem að UNICEF vinnur að
Markmið 1. (Engin fátækt)
Fátækt hefur afdrífarík áhrif á grunnréttindi barna, aðgang að næringarríkum mat, heilsu, vatni, menntun, öryggi og skjóli. UNICEF vinnur að því að grunnréttindum barna sé mætt.
Markmið 2. (Ekkert hungur)
Næring er grunnurinn að lífi, heilsu og þroska barns. UNICEF vinnur því að sporna gegn vannæringu.
Markmið 3. (Góð heilsa og vellíðan)
UNICEF vinnur að því að styrkja heilsukerfi og vinna gegn hinum ýmsu kvillum sem oft hrjá börn, með því að bæta störf heilsugæslu á samfélagsstigi.
Markmið 4. (Menntun fyrir alla)
Menntun er mikilvæg til að sporna gegn fátækt, koma í veg fyrir sjúkdóma og gera samfélög þrautseigari og friðsamlegri.
Markmið 5. (Jafnrétti kynjanna)
UNICEF berst gegn því að konur missi af menntun því þær séu neyddar til að vinna heimilisstörf, neyddar í barnahjónaband eða verða fyrir kyndbundu ofbeldi. Kynjamismunur getur byrjað snemma og UNICEF vinnur í þágu þess að öll börn, sama hvers kyns, fái tækifæri til þess að þroskast, læra og dafna.
Starfsemi UNICEF snertir á öllum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, lesa má um þau öll hér.
Heimildir:
UNICEF (e.d.). About UNICEF. https://www.unicef.org/about-unicef
UNICEF (e.d.). UNICEF and the Sustainable Development Goals. https://www.unicef.org/sdgs#sdg1
UNICEF Ísland. (e.d.) Starfið okkar. https://www.unicef.is/starfid-okkar