Alþjóðaviðskiptastofnunin (e. World Trade Organization, WTO) gegnir mikilvægu hlutverki í að ýta undir stöðugleika í heiminum með því að búa til vettvang þar sem hægt er að semja um reglur um viðskipti á milli ríkja sem allir eiga að innleiða í sín landslög.
Snemma eftir seinni heimsstyrjöldina voru almennir samningar um tolla og viðskipti samþykktir (e. General Agreement on Tariff and Trade, GATT) en Alþjóðaviðskiptastofnunin tók við keflinu árið 1995 til þess að leggja meiri áherslu á viðskipti með þjónustu og hugverk, sem og styrkja grundvöllinn til að útkljá deilumál og endurvekja traust þróunarríkja með því að tryggja að þeirra þarfir falli ekki í skugga ríku landanna.
Stofnunin miðar að því að fella niður tolla, innflutningskvóta sem og aðrar takmarkanir og gera viðskipti sem sanngjörnust fyrir öll sín aðildaríki með því að veita fyrirsjáanleika í viðskiptum. Lönd virða því innflutning frá öðrum ríkjum og koma í veg fyrir kostnaðarsamar upp á komur. Öll aðildarríki eiga því að standa jöfnum fæti þó einhver sveigjanleiki sé veittur þróunarríkjum.
Í samningagerð Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar þarf að vera einróma samþykki en það þýðir að öll 164 aðildarríkin þurfi að vera sammála um þær reglur sem á að innleiða í hvert sinn. En það getur reynst flókið að fá alla aðila, frá mismunandi stöðum í heiminum, til þess að vera sammála. Þess vegna er stór hluti stofnunarinnar vettvangur til að komast að sameiginlegri niðurstöðu.
Hvers vegna er Alþjóðaviðskiptastofnunin mikilvæg stofnun?
Því hún skapar vettvang til að bæta alþjóðleg viðskipti og þar með bæta hagvöxt í þágu aðildarríkja sinna.
Dæmi: Ef að mikilvægur útflutningur frá einu ríki fær skyndilega ekki aðgang inn á markað í öðru ríki getur það haft neikvæð áhrif á efnahag þess fyrra. Því er fyrirsjáanleiki í viðskiptum á milli ríkja mikilvægur. Reglur um háttsemi ýtir undir fyrirsjáanleika og vettvangur WTO til að útkljá deilumál tryggir sanngirni og minnkar líkur á óheiðarleika.
Heimsmarkmið sem Alþjóðaviðskiptastofnunin stuðlar meðal annars að
Markmið 1. (Engin fátækt)
Með því að stuðla að auknum viðskiptum á milli landa skapast hagvöxtur og grundvöllur fyrir aukin atvinnutækifæri. Lönd geta því framleitt vörur sem eru eftirsóttar á öðrum stað í heiminum og innflutt vörur sem þau geta ekki framleitt. Einnig stuðlar þetta að erlendri fjárfestingu og þar með meira flæði fjármagns í landinu.
Markmið 2. (Ekkert hungur)
Í samræmi við markmið 1, með auknum viðskiptum er hægt að tryggja betur mataröryggi, þar sem allir hafa alltaf aðgang að nægum, hollum, öruggum og nærandi mat. Einnig spornar WTO gegn skaðsamlegum ríkisstuðning í útflutningi á landbúnaðarvörum sem gæti truflað alþjóðaviðskipti og að öllum líkindum bitnað á viðskiptum og framleiðslu annara ríkja. Til að mynda með því að lækka verð á útflutningi og þar með grafa undan sanngjarnri samkeppni.
Markmið 5. (Jafnrétti kynjanna)
WTO vill bæta þátttöku kvenna á vinnumarkaðnum, en það leiðir af sér aukna afkastagetu landa, meiri nýsköpun og dregur úr fátækt. WTO styður aðildarríki sín í málefnum tengd viðskiptum og kynjunum, með því að halda utan um rannsóknir og gögn, setja kynjamál í sviðsljósið og auka alþjóðlega meðvitund um málefni kynja í viðskiptum.
Markmið 8. (Góð atvinna og hagvöxtur)
Viðskipti leiða af sér aukinn hagvöxt og tekjuöflunargetu landa sem er forsenda sjálfbærni.
Markmið 14. (Líf í vatni)
WTO miðar að því að setja áherslur á að draga úr ríkisstuddum fiskveiðum og þannig sporna við ofveiði og hættunni sem því fylgir fyrir líf í vatni.
Markmið 17. (Samvinna um markmiðin)
WTO ýtir undir að aðildarríki sín hafi almennt, opið, alhliða viðskiptakerfi byggt á reglum og án mismunar sem eykur samvinnu og velfarnað og styður því markmið 17.
Heimildir:
WTO (e.d.). Anti-dumping, subsidies, safeguards: contingencies, etc. https://www.wto.org/english/thewto_e/whatis_e/tif_e/agrm8_e.htm
WTO (e.d.) The WTO. https://www.wto.org/english/thewto_e/thewto_e.htm#:~:text=The%20World%20Trade%20Organization%20(WTO,and%20ratified%20in%20their%20parliaments.
WTO (e.d.). The WTO and the Sustainable Development Goals. https://www.wto.org/english/thewto_e/coher_e/sdgs_e/sdgs_e.htm#:~:text=By%20delivering%20and%20implementing%20trade,Millennium%20Development%20Goals%20before%20them