Alþjóðahugverkastofnunin (e. World Intellectual Property Organization, WIPO) sérhæfir sig í að stuðla að og vernda hugverk á alþjóðasvísu. Alþjóðahugverkastofnunin var stofnuð 1967 í þeim tilgangi að mynda vettvang fyrir hugverkaþjónustu, stefnur, upplýsingar og samvinnu með það að leiðarljósi að þróa áhrifaríkt hugverka kerfi sem stuðlar að nýsköpun, öllum til hagsbóta.
Með samvinna aðildarríkja er hægt að tryggja einkaleyfi á hugverkum, passa að þeim sé ekki stolið og ýta undir nýsköpun. Hugverk þýðir eitthvað sem einstaklingur skapar með huga sínum, hvort sem það eru uppfinningar, bækur, málverk eða myndir, svo fátt sé nefnt. WIPO er því með gagnabanka sem heldur utan um höfundarrétt, einkaleyfisrétt og vörumerki og spornar því gegn eftirhermum eða stuldi á hugmyndum.
Höfundaréttur er til að mynda á bókum, bíómyndum og tónlist. Einkaleyfisréttur er vara eða ferli sem færir fram nýja leið til að framkvæma hluti og leysa vandamál og gefur eiganda sínum réttinn til að ráða hvort varan eða ferlið sé framleitt í hagnaðarskyni. Vörumerki er merki sem gerir neytendum kleift að greina á milli vara frá mismunandi fyrirtækjum.
WIPO er stýrt af allsherjarþingi og samræmingarnefnd sem saman setja stefnur og þjóna sem ákvörðunarvaldið. Allsherjarþingið velur forstjóra og starfrækir skrifstofu sem sér um daglega starfsemi WIPO. Störf WIPO eru ekki fjármögnuð af aðildarríkjum eins og tíðkast hjá öðrum stofnunum í Sameinuðu þjóðunum heldur kemur 95% af fjármagni í gegnum þá gjaldskyldu þjónustu sem stofnunin býður upp á, greitt af fyrirtækjum og þeim sem nýta sér þjónustu WIPO.
Hvers vegna er WIPO mikilvæg?
Því WIPO heldur utan um og verndar nýsköpun með því að stuðla að reglum um vernd hugverka og að halda úti gagnagrunni fyrir hugverk.
Heimsmarkmið sem að WIPO stuðlar að
Markmið 9. (nýsköpun og uppbygging)
Nýsköpun er miðpunktur þeirra vinnu sem WIPO framkvæmir. Með því að stuðla að nýsköpun er verið að hjálpa við að finna nýjar leiðir til að leysa þau vandamál sem að heimsmarkmiðin takast á við.
Heimildir:
WIPO. (e.d.). Copyright: What is a copyright? https://www.wipo.int/copyright/en/
WIPO. (e.d.). Inside WIPO: What is WIPO? https://www.wipo.int/about-wipo/en/
WIPO. (e.d.). Patents: What is a patent? https://www.wipo.int/patents/en/
WIPO. (e.d.). Results, Budget and Performance. https://www.wipo.int/about-wipo/en/budget/
WIPO. (e.d.). Trademarks: What is a trademark? https://www.wipo.int/trademarks/en/