Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna (e. Office of the UN High Commissioner for Human Rights, OHCHR) er í fararbroddi þegar það kemur að því að verja og efla mannréttindi á heimsvísu. Með Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi vinnur stofnunin að því að stuðla að allsherjar mannréttindum sem alþjóðasamfélagið hefur samþykkt á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Yfirlýsingin var skrifuð í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar þar sem mannréttindi höfðu átt undir mikið högg að sækja.
Stofnunin vinnur með og aðstoðar ríkisstjórnir í að uppfylla þeirra skyldur þegar kemur að mannréttindum. Hún talar málefnalega gegn mannréttindabrotum á heimsvísu. Veitir vettvang til að auðkenna, undirstrika og þróa aðgerðir gegn mannréttindabrotum. Hún starfar sem miðstöð fyrir rannsóknir á mannréttindabrotum, menntun, almenningsfræðslu og sinnir hagsmunagæslustarfi. Stofnunin á í samstarfi með samstarfsaðilum til að dreifa boðskap mannréttinda sem víðast. Mikil starfsemi fer fram á vettvangi víða um heim, þar sem viðvera stofnunarinnar gegnir mikilvægu hlutverki í að sinna eftirliti, fylgja á eftir og þróa aðferðir til að leysa mannréttindaáskoranir. Við árslok 2021 var stofnunin með viðveru á 96 mismunandi stöðum í heiminum, þar sem hún veitti stuðning til annarra stofnana Sameinuðu þjóðanna í formi liðsauka.
Mannréttindastofnunin þjónar einnig sem miðlæg skrifstofa fyrir Mannréttindaráðið sem er skipað af allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna til að styrkja og fjalla um mannréttindamál. Frá stofnun Sameinuðu þjóðanna árið 1945 hafa mannréttindi og virðing fyrir þeim verið grundvallaratriði, og vinna Mannréttindastofnunarinnar hefur verið að setja sjónarmið mannréttinda inn í öll þau verkefni sem Sameinuðu þjóðirnar taka sér fyrir. Þannig er hægt að tryggja að þrjár megin stoðir Sameinuðu þjóðanna, friður og öryggi, þróun, og mannréttindi séu tengd á gagnkvæman og styrkjandi hátt.
Hvers vegna er Mannréttindastofnun Sameinuðu þjóðanna mikilvæg?
Því hún leitast við að framfylgja, efla og verja mannréttindi á heimsvísu.
Heimsmarkmið sem að Mannréttindastofnunin vinnur meðal annars að:
Mannréttindastofnunin nálgast heimsmarkmiðin með það að leiðarljósi að mannréttindi séu í hávegum höfð þegar það kemur að því að innleiða markmiðin. Með því að nálgast á þann hátt að gagnasöfnun, eftirlit og skýrslugerð séu án mismunar og með mannréttindi í fararbroddi er hægt að tryggja að kostir heimsmarkmiðanna nái til allra. Hún styður við ríkisstjórnir og samfélög til að samþætta mannréttindi við innleiðingu heimsmarkmiðanna. Sem og eflir jaðarsetta hópa, jafnrétti kynjanna (markmið 5), stuðlar að aukinni þátttöku og jöfnuði (markmið 10) og virðingu fyrir grunnfrelsi, t.d. með því að efla jafnan aðgang að hreinu vatni (markmið 6.) og menntun fyrir alla (markmið 4.).
Heimildir:
OHCHR. (e.d.). What we do: an overview. https://www.ohchr.org/en/about-us/what-we-do
United Nations. (e.d.). Office of the High Commissioner for Human Rights. https://sdgs.un.org/un-system-sdg-implementation/office-high-commissioner-human-rights-ohchr-24516