Alþjóðafjarskiptasambandið (e. International Telecommunication Union, ITU) er sú stofnun Sameinuðu þjóðanna sem sérhæfir sig í upplýsinga- og samskiptatækni. Upprunalega stofnuð 1865 til að stuðla að samvinnu alþjóðlegra fjarskiptaneta sem voru að ryðja sér til rúms á þeim tíma. Sambandið á sér því langa sögu þar sem mikið hefur verið um nýjungar í þeirra starfsemi sem þjónustar fólki um allan heim. Sambandið er tileinkað því verkefni að tengja saman fólk, hvar sem er í heiminum og við hvaða aðstöðu sem er, og þannig vernda og styðja réttindi allra til að eiga í samskiptum. Alþjóðafjarskiptasambandið þróar einnig tæknilega staðla sem tryggja að netkerfi og tækni tengist á óaðfinnanlegan hátt, en einnig vinnur það hörðum höndum að því bæta aðgang vanþróaðra samfélaga víðsvegar um heiminn. Í hvert skipti sem að þú hringir úr símanum þínum, ferð á netið eða sendir tölvupóst þá ertu að nýta þér vinnu sem Alþjóðafjarskiptasambandið hefur komið að.
Alþjóðafjarskiptasambandið hefur þrjú meginstarfssvið; útvarpssamskipti, staðla, og þróun. Útvarpssamskipti eiga við um gervihnetti sem senda merki á milli staða og hjálpa því við símtöl, útsendingu sjónvarpsefnis, gervihnattaleiðsögu og önnur kort á netinu. Slík gervihnatta þjónusta er nauðsynleg til að fylgjast með breytingum á hitastigi sjávar, gróðurmynstri og gróðurhúsalofttegundum og þannig aðstoða við að spá fyrir um hungursneyð, hvirfilbyli og loftslagsbreytingar. ITU ýtir því undir samhæfingu á síaukinni þjónustu útvarpssamskipta, auk alþjóðlegri stjórnun á útvarpsbylgjurófi og gervihnattabrautum. Staðlar, oft kallaðir ráðleggingar, sambandsins eru nauðsynlegir fyrir upplýsinga- og samskiptatækni því án þeirra væri ekki hægt að hringja símtal eða vafra um netið, því þeir gera kerfum kleyft að vinna saman. Sambandið býður einnig upp á þróunarverkefni til að styðja við útbreiðslu á upplýsinga- og samskiptatækni.
Hvers vegna er Alþjóðafjarskiptasambandið mikilvægt?
Því það býr til staðla, eykur fjarsamskipti og þjónustu í geiranum, til að stækka og tengja sem flesta saman.
Heimsmarkmið sem að Alþjóðafjarskiptasambandið vinnur meðal annars að:
Markmið 7. (Sjálfbær orka)
Með því að stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda.
Markmið 12. (Ábyrg neysla og framleiðsla)
Markmið 13. (Aðgerðir í loftslagsmálum)
Með því að nýta nútímatækni í útvarpssamskiptum er hægt að auka framleiðslugetu, hámarka orkunotkun og minnka flutninga sem leiðir til minni losunar á koltvísýringi.
Heimildir:
ITU. (2022). About International Telecommunication Union. https://www.itu.int/en/about/Pages/default.aspx
ITU. (2022). Radiocommunications and Climate Change. https://www.itu.int/en/ITU-R/information/Pages/climate-change.aspx
ITU. (2022). What does ITU do? https://www.itu.int/en/about/Pages/whatwedo.aspx