Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (e. United Nations High Commissioner for Refugees, UNHCR) er sú alþjóðlega stofnun sem vinnur að því að bjarga lífum, verja réttindi og byggja betri framtíð fyrir flóttamenn, samfélög á flótta og ríkisfangslaust fólk sem hefur í engin hús að venda. Stofnunin leggur áherslu á að allir hafi rétt á því að fá hæli og öruggt skjól eftir að hafa flúið ofbeldi, ofsóknir, stríð eða aðrar hörmungar heima fyrir. Ástandið eftir seinni heimsstyrjöldina krafðist þess að stofnun yrði sett á laggirnar til að takast á við mikinn fjölda flóttamanna í kjölfar stríðsins. Á komandi árum víkkaði umfang stofnunarinnar í kjölfar annarra átaka og breytinga á heimsmyndinni.
Flóttamannastofnunin er málsvari flóttamanna og setur áherslur á að breyta til hiðs betra stefnum og þjónustu sem hafa áhrif á flóttamenn á öllum stigum, hvort sem það er á landsvísu, svæðisbundið eða á heimsvísu. Bæði í hælislandi og upprunalandi er lögð mikil áhersla á að vinna á pólitískum, efnahagslegum og samfélagslegum stigum til að innleiða stefnur, aðgerðir og lög sem samræmast alþjóðlegum staðli.
Flóttamannastofnunin hefur staðið við umboðið sitt að þjóna flóttamönnum óháð staðsetningu þeirra og sýnt litla hlutlægni gagnvart þeim sem fjárhagslega styrkja stofnunina. Stofnunin vill tryggja að allir hafi rétt á því að leita að hæli og finna öruggt skjól í öðru landi, með valmöguleikann á því að snúa sjálfviljugur aftur heim, verða hluti af nýja samfélaginu eða setjast að í þriðja landinu með það að markmiði að tryggja varanlega lausn.
Hvers vegna er Flóttamannastofnunin mikilvæg?
Því hún veitir nauðsynlega aðstoð til þeirra sem minnst mega sín og hafa í engin önnur hús að venda. Án stofnunarinnar væri ástandið ennþá verra fyrir þá sem neyðast til að flýja heimili sitt.
Heimsmarkmið sem að Flóttamannastofnunin vinnur að
Flóttamannastofnunin vinnur að heimsmarkmiðunum og þeirri staðfestingu að skilja engan eftir. Þannig hvetur hún innlimun flóttamanna og ríkisfangslausra einstaklinga inn í landskerfin, meðal annars heilsukerfi og menntakerfi á meðan það er verið að finna varanlega lausn fyrir þá. Stofnunin vinnur því í átt að því að flóttamenn verði ekki útundan í þeirri vegferð sem heimsmarkmiðin boða.
Hemildir:
UNHCR. (e.d.). 2030 Agenda for sustainable development. https://www.unhcr.org/2030-agenda-for-sustainable-development.html
UNHCR. (e.d.). About Us. https://www.unhcr.org/about-us.html
UNHCR. (e.d.). Advocacy. https://www.unhcr.org/advocacy.html
UNHCR. (e.d.). Who We help. https://www.unhcr.org/who-we-help.html