Alþjóðafólksflutningastofnunin (e. International Organization for Migration, IOM) er sú alþjóðastofnun sem leiðir veginn í að stuðla að mannúðlegum og skipulögðum flutningum fólks í þágu allra. Með viðveru í fleiri en 100 löndum og veittum stuðning í öllum 174 aðildarríkjunum er stofnuninni kleyft að leggja áherslu á bætta stöðu fólks sem flyst á milli staða. Stofnunin veitir þjónustu og ráðgjöf til stjórnvalda og farandfólks, stuðlar að alþjóðlegri samvinnu, aðstoðar við að finna hagnýtar lausnir á vandamálum farandfólks, sem og veitir mannúðaraðstoð til þeirra sem þarfnast, t.d. flóttafólks.
Stofnunin var stofnuð 1951 til að aðstoða við að finna ný heimkynni fyrir þá sem misstu heimili sín eða neyddust til að leita annað í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar. Stofnunin vinnur út frá fjórum megin þáttum fólksflutninga: fólksflutningar og þróun, auðvelda fólksflutninga, hafa stjórn á fólksflutningum og takast á við þvingaða fólksflutninga. Starfsemi stofnunarinnar felur því í sér að ýta undir alþjóðalöggjöf varðandi fólksflutninga, stefnumótun og leiðbeiningar, verja réttindi farandfólks, heilsu og passa upp á kynjajafnrétti. Stofnunin styður einnig við beina þátttöku farandfólks í samfélaginu svo það geti haft góð áhrif á þróun þess.
Þó að Alþjóðastofnun um fólksflutninga og Flóttamannastofnunin vinni saman, sinna þær ekki sama starfi því það er munur á flóttafólki og farandfólki. Flóttamenn eru að flýja slæmt ástand í heimalandi sínu og leita að varanlegu skjóli en farandfólk getur verið fólk sem ferðast á milli staða í leit að vinnu, hvort sem það er varanlegt eða tímabundið. En báðir hópar skarast á og geta verið í sömu aðstæðum á sinni ferð og því eru stofnanirnar mikilvægir samstarfsaðilar.
Hvers vegna er Alþjóðafólksflutningastofnunin mikilvæg?
Því hún sér til þess að fólksflutningar séu mannúðlegir og skipulagðir, með stefnumótun og alþjóðlegri samvinnu.
Heimsmarkmið sem Alþjóðafólksflutningastofnunin vinnur að:
Markmið 3 (heilsa), markmið 9 (menntun), markmið 11 (sjálfbærar borgir og samfélög)
Alþjóðafólksflutningastofnunin vinnur að því að sýna stjórnvöldum hvernig stjórnsýslusvið verða fyrir áhrifum og eru tengd fólksflutningi og hvernig stefnur geti haft góð áhrif á getu farandfólks til þess að leggja sitt af mörkunum til samfélagsins. Því skiptir það máli að koma þeirra málefnum inn í skipulagsgerðir. Þannig að þær stefnur sem miða að því að bæta heilsu, menntun og húsnæðismál séu einnig með farandfólk í huga.
Heimildir:
IOM. (e.d.). Migration, Sustainable Development and 2030 agenda. https://www.iom.int/migration-sustainable-development-and-2030-agenda
IOM. (e.d.). Our Work. https://www.iom.int/our-work