Samþætting

Samþætting

Síðustu árin hafa kennsluhættir verið að færast í átt að aukinni samþættingu námsgreina, ekki síst á yngsta stiginu. Byrjendalæsi er kennsluaðferð sem hentar vel við samþættingu námsgreina. Með samþættingu er átt við að unnið sé með viðfangsefni sem taka til fleiri en einnar námsgreinar. Handbækurnar Að mörgu er að hyggja (Ingvar Sigurgeirsson, 1999) og Fagleg kennsla í fyrirrúmi (Hafdís Guðjónsdóttir o.fl., 2005) sýna báðar dæmi um samþættingu námsgreina.

Algengt er að flétta saman læsi, samfélagsgreinar, náttúrufræðigreinar og skapandi starf. Aðrar námsgreinar s.s., stærðfræði og lífsleikni samþætta kennarar einnig með læsi. Viss hætta er á, við samþættingu læsis við aðrar námsgreinar, að markmið og verkefni fyrir læsiskennsluna falli í skuggann af markmiðum og verkefnum þeirra greina sem samþætta á með læsinu. Hafa þarf í huga þegar kennsluáætlun er útbúin að markmiðssetning sé skýr fyrir bæði læsi og það fag sem samþætta á við læsi. Krossáætlun og vennkort eru góð verkfæri til að vinna með þegar markmið eru sett niður.