Leiðtoganám í Byrjendalæsi

Námið

Haustið 2020 varð breyting á leiðtoganámi í Byrjendalæsi. Námið fór úr því að vera tveggja ára þróunarstarf yfir í ECTS einingarbært nám á framhaldsstigi háskóla. Námið er kennt í þrem lotum og er hver lota 5 ECTS einingar. Námið er í umsjón ráðgjafa MSHA

Í námsskeiðinu er sjónum beint að hlutverki leiðtoga í læsi á sviði Byrjendalæsis. Jafnframt að gera kennara meðvitaðri um eigin starfskenningu og hvernig starfstengd leiðsögn getur eflt faglega starfshæfni m.a. einstaklinga, hópa og reyndra kennara. Leiðtogi í læsi leiðir námssamfélag kennara í sínum skóla með félagastuðningi, samræðum um efni og aðferðir. Viðfangsefnin miða að því að auka og dýpka þekkingu kennara á fjölbreyttum aðferðum sem styðja og efla læsi á öllum stigum grunnskólans og færni í að nota þær. Fjallað er um leiðir til að efla orðaforða og skilning, ritun, samvinnunám og samræðu til náms. Athygli er beint að mikilvægi áhugahvatar fyrir læsisnám, sjálfstæði í námi, námsaðlögun og námsvitund. Á námskeiðinu er horft á viðfangsefni Byrjendalæsis í ljósi tækniþróunar nútímans. Kynnt verða smáforrit sem eru sérstaklega gerð til að þjálfa ýmsa færniþætti í læsisnámi grunnskólanemenda og sköpun.

Markhópur

Kennarar með leyfisbréf sem hafa lokið grunnnámskeiðum Byrjendalæsis.

Lýsing

Námið er vettvangs- og starfsmiðað og munu nemendur gera rannsókn á vettvangi þar sem þeir afla gagna sem unnið er úr í samráði við kennara í þeirra skólum og aðra nemendur á námskeiðinu. Kennsla í námskeiðinu verður með fjölbreyttum hætti í formi fyrirlestra, umræðna, verkefnavinnu og fjarfunda. Lögð er áhersla á kennsluhætti sem hvetja til virkrar þátttöku nemenda.

Markmið

Í náminu er sjónum beint að hlutverki leiðtoga í læsi á sviði Byrjendalæsis. Meginmarkmiðið er að styrkja nemendur sem faglega leiðtoga í námssamfélagi læsiskennara og styðja við þá kennslufræðilega. Jafnframt að gera nemendur meðvitaðri um eigin starfskenningu og hvernig starfstengd leiðsögn getur eflt faglega starfshæfni m.a. einstaklinga, hópa og reyndra kennara. Leiðtogi í læsi leiðir námssamfélag kennara í sínum skóla með félagastuðningi, samræðum um efni og aðferðir. Viðfangsefnin miða að því að auka og dýpka þekkingu nemenda á fjölbreyttum aðferðum sem styðja og efla læsi á öllum stigum grunnskólans og færni í að nota þær. Fjallað er um leiðir til að efla orðaforða og skilning, ritun, samvinnunám og samræðu til náms. Athygli er beint að mikilvægi áhugahvatar fyrir læsisnám, sjálfstæði í námi, námsaðlögun og námsvitund. Í náminu er horft á viðfangsefni Byrjendalæsis í ljósi tækniþróunar nútímans. Kynnt verða smáforrit sem eru sérstaklega gerð til að þjálfa ýmsa færniþætti í læsisnámi grunnskólanemenda og sköpun.