1. bekkur
Ánamaðkar
Ánamaðkar - kennsluáætlun og gögn með henni
Kennsluáætlun Ánamaðkar
Gagnvirkur lestur - Spæjarinn
Mynd á töflu með markmiðum vikunnar.
Markmið og orð vikunnar á töflu
Slönguspil - verkefni 1
Hljóðgreining - verkefni 2
Orð vikunnar - verkefni 4
Lesfimi - verkefni 5
Aukaverkefni til að æfa hljóðgreiningu
Verkefnavinna nemenda
Í Byrjendalæsi er mikil áhersla á að nemendur búi sjálfir til verkefnin sem þeir eru að vinna. Hér á þessari síðu erum við búin að búa til öll verkefnin og vonandi gefa þau ykkur hugmyndir að öðrum verkefnum sem þið getið látið nemendur búa til.
Sem dæmi má nefna stafabingóið. Þar mætti t.d. biðja nemendur að skrifa stóru bókstafina á sérspjöld og litlu bókstafina á sérspjöld og þá væru þau búin að búa til veiðimann þar sem þarf að biðja um litla A og stóra a.
Veiðmaður
Markmið spilsins veiðmaður er að safna slögum (fjórum spilum sem eru öll eins, 4 áttur o.s.frv). Í Byrjendalæsi tökum við smá tvist á Veiðimanninn markmiðið er áfram að fá fjögur spil sem eru öll eins nema hér vinnum við t.d. með bókstafi og fleira.
Kennari ákveður hvort nemendur byrja spilið á því að draga 3, 4 eða fimm spil. Einnig þarf að vera á hreinu strax í upphafi spils hvaða leikreglur gilda. Ef nemandi fær slag (fjögur eins spil) má hann þá gera aftur. Ef andstæðingur á ekki spilið sem hann spyr um og hann þarf að veiða úr borðinu og dregur spilið sem hann spurði um. Má hann þá gera aftur?
Þetta eru atriði sem þarf að hafa í huga.