Hafrasmákökur
Fyrir 10–12 bakara
Áhöld
Skál, mæliskeiðar, desilítramál
Efni
5 dl hveiti
2 dl hafragrjón
1 tsk matarsódi
2 dl sykur
1 egg
4 msk síróp
200 gr smjör (smjörlíki)
Aðferð
1. Kveikið á ofninum.
2. Þurrefnin mæld í skál.
3. Kalt smjörlíki mulið saman við.
4. Vætt í með sírópi og egginu.
5. Deigið hnoðað saman.
6. Deiginu skipt jafnt á milli bakaranna.
Hver bakari býr til lengju og sker hana svo í u.þ.b. 8 litla bita.
Bitunum rúllað í fallegar kúlur.
Kúlunum raðað á plötur og þrýst svolítið á hverja kúlu með gaffli.
Bakað við 180–200 C° í u.þ.b. 10–12 mínútur.